Borgarstjóri lék fyrsta leikinn á Reykjavíkurskákmótinu

Íþróttir og útivist Mannlíf

""

Jón Gnarr borgarstjóri lék fyrsta leikinn á N1 Reykjavíkurskákmótinu fyrir hollenska stórmeistarann Anish Giri sem teflir á móti Johan Sebastian Christiansen frá Noregi. Giri er stigahæsti keppandinn á mótinu.

Mótið var sett í 49 sinn í Hörpu í dag en það er hið fjölmennasta frá upphafi og er búist við 230 keppendum. Þar af eru um 170 erlendir gestir frá 40 þjóðum. Meðal keppenda verður Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga, sem er 78 ára en hann tók einnig þátt í fyrsta Reykjavíkurskákmótinu.

Tveir heimsmeistarar keppa á mótinu; kínverska stúlkan Guo Qi sem er heimsmeistari stúlkna og Alexander Ipatov sem er heimsmeistari pilta. Þau eru á meðal margra ungra skáksnillinga sem setja svip sinn á mótið í ár. Meðal þeirra eru áðurnefndur Anish Giri, 19 ára, Wesley So frá Filippseyjum og kínversku stórmeistararnir Bu Xiangzhi, Yu Yangyi og Ding Liren.

N1 Reykjavíkurskákmótið er styrkt af Reykjavíkurborg og stendur yfir í Hörpu dagana 19. - 27. febrúar.