Borgarstjóri Árósa heimsækir skóla

Skóli og frístund

""

Jacob Bundsgaard, borgarstjóri Árósa, heimsótti leikskólann Rauðhól í morgun og fór með börnum og starfsfólki út í Björnslund þar sem hann kynnti sér m.a. útinámssvæði leikskóla- og grunnskólabarna. Þá fundaði hann með fulltrúum í skóla- og frístundaráði, starfsfólki á skrifstofu SFS og fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, foreldra og Menntavísindasviði HÍ.

Rauðhóll er nú stærsti leikskóli borgarinnar og nýstárlegur um margt, þar sem mikið flæði er milli leikskólastarfsins og grunnskólastarfsins í Norðlingaskóla. Þá hefur skólinn markað sér sérstöðu með útikennslu, en hann er með starfsstöð í Björnslundi.

Jacob Bundsgaard hefur setið í borgarstjórn Árósa fyrir jafnaðarmenn síðan 2002 og m.a. verið formaður í fagráði borgarinnar fyrir skóla- og frístundastarf. Hann tók við borgarstjórastöðunni í ágúst 2011. Hann hefur á undanförnum árum staðið fyrir umtalsverðum skipulagsbreytingum í skóla- og frístundastarfi  í Árósum, m.a. sameiningum skóla. Hann miðlaði reynslu sinni af því á fundinum með starfsfólki SFS og sérfræðingum í morgun.