Borgarfulltrúar heimsóttu í dag þrenn sjálfboðaliðasamtök í borginni til að fræðast um þeirra störf. Þetta er í annað sinn sem efnt er til slíkra heimsókna í tilefni af alþjóðlegum degi sjálfboðaliðastarfs sem er 5. desember ár hvert.
Borgarfulltrúar gátu sjálfir ákveðið m.a. með hliðsjón af fundadagskrá sinni í dag hvort þeir myndu heimsækja ein, tvenn eða öll þrenn samtökin sem höfðu góðfúslega fallist á að taka á móti borgarfulltrúunum og fræða þá um sjálfboðaliðastörf. Það voru Mæðrastyrksnefnd, Stígamót og Landsbjörg sem tóku þátt í heimsóknum borgarfulltrúa í ár en hver heimsókn tók um klukkustund. Alls staðar var vel tekið á móti borgarfulltrúunum í húsakynnum samtakanna sem þeir heimsóttu. Boðið var upp á kynningu á starfsemi þeirra og að því loknu spjallað um hin ýmsu málefni sem tengjast sjálfboðaliðastarfi hverra samtaka fyrir sig.