Bókamessa í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina

Mannlíf Menning og listir

""

Helgina 23. - 24. nóvember verður Bókamessa í Bókmenntaborg haldin í þriðja sinn. Messan verður sem fyrr í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem útgefendur sýna bækur sínar og boðið verður upp á fjölbreytta bókmenntadagskrá. Gestir  geta skorað á Gunnar Helgason í fótboltaspili, spreytt sig á að skrifa upp texta eftir handriti úr fórum Árna Magnússonar, teiknað brosmyndir, lært puttaprjón og tekið þátt í að prjóna trefilinn endalausa.

Bókamessan verður opin frá kl. 12:00 - 18:00 báða dagana. Höfundar lesa úr verkum sínum, þekktar sögupersónur mæta í heimsókn, boðið verður upp á lifandi tónlist, tískusýningu, förðun, LEGO-smiðju, sögustundir, fræðandi erindi og umræður um nýjar bækur.

Gestir geta skorað á Gunnar Helgason í fótboltaspili, spreytt sig á að skrifa upp texta eftir handriti úr fórum Árna Magnússonar, teiknað brosmyndir, lært puttaprjón og tekið þátt í að prjóna trefilinn endalausa – eða bara hreiðrað um sig í lestrarhorninu og lesið. Meðal annars verður hægt að kynna sér fjölbreytt úrval lífsstílsbóka en þær hafa verið valdar jólagjöf ársins 2013 af valnefnd Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Matreiðslubækur, sjálfshjálparbækur og hannyrðabækur verða kynntar á Ráðhúsganginum alla helgina og gestum boðið að smakka á gómsætum réttum, láta skreyta á sér neglurnar og fá góð ráð um förðun og hárgreiðslu. Ekki má svo gleyma sjálfri bókasýningunni, en í Ráðhúsinu gefst einstakt tækifæri til að kynna sér útgáfu ársins, spjalla við útgefendur og höfunda og spá í bækur um allt milli himins og jarðar.

Klukkan 16 báða dagana verður bókmenntadagskrá í Borgarstjórnarsalnum. Rithöfundurinn og útvarpsmaðurinn Haukur Ingvarsson fær til sín skáldin Guðmund Andra Thorsson, Sindra Freysson og Sjón til að ræða Hliðar karlmennskunnar í verkum sínum á laugardag. Boðið verður upp á slökunarstund fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ingibjörg Kr. Ferdinandsdóttir, höfundur bókarinnar Garður hugans, leiðir slökunarstund sem byggir á aldagamalli hugleiðslu sem miðar að því að ná tökum á eigin hugsunum og finna innri ró og frið. Skáldið og þýðandinn Þórdís Gísladóttir fær til sín þýðendurna Ingunni Ásdísardóttur, Óskar Árna Óskarsson og Rúnar Helga Vignisson til að ræða Ást, dauða og djöfulskap í þýðingum.

Að þessu sinni verða tveir erlendir höfundar þýddra bóka ársins gestir messunnar, þeir Carl Jóhan Jensen frá Færeyjum og norski glæpasagnahöfundurinn Jörn Lier Horst, sem er handhafi Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna, 2013. Báðir verða í höfundaspjalli með þýðendum sínum á laugardeginum.

Bókamessan er samstarfsverkefni Félags íslenskra bókaútgefenda og Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO. Sjá heildardagskrá Bókamessu á  vefnum www.bokmenntir.is