Bjúga, eldsmiðir og skemmtun á Ingólfstorgi

Umhverfi Skipulagsmál

""

Reykjavík, Barcelóna, New York, Nuremberg eða Strassburg? Reykjavík var valin á vef CNN sem ein af tíu jólalegustu borgum í heimi og var jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi nefndur sérstaklega af því tilefni. Á markaðnum er hægt að kaupa gjafir, skreytingar, íslenskt handverk, fatnað og jólamat eða eiginlega allt sem þarf til jólanna.

Jólamarkaðurinn á Ingólfstorgi verður opinn um helgina frá kl. 12.00-22.00. Þar verður rjúkandi jólaglögg á boðstólnum, hamingjusöm, æt, of lífrænt ræktuð jólatré frá Vallarnesi,matvæli, handverk og hönnun. Hellisbúinn frá Hellu vinnur lambakjöt og hrossakjöt beint frá býli. Ingibjörg dávaldur býður upp á ókeypis ördáleiðslu og sérstök áhersla er á fatnað fyrir börn þessa helgina.

Tónlistaratriði verða á torginu með reglulegu millibili, eldsmiðir sem sýna gamalt handbragð við málmsmíði og jólasveinninn lítur við.

Jólamarkaðurinn hefur fest sig í sessi sem áfangastaður í jólaundirbúningi borgarbúa og skapast gott andrúmsloft innan um ilmandi matvæli og fallegar vörur.

https://www.facebook.com/events/1396448700597966/