Töluverðar framkvæmdir verða við skóla og skólalóðir í borginni í sumar. Lokið verður við endurbætur á elstu álmu Breiðagerðisskóla en sú vinna hófst síðastliðið sumar. Endurbótum á norðurhluta lóðarinnar verður einnig lokið. Flatarmál þess húsnæðis sem hefur verið endurbætt í Breiðagerðisskóla er um 900 fermetrar.
Þá er hafinn undirbúningur að framkvæmdum við 3.400 fermetra viðbyggingu við Klettaskóla sem hýsa mun sundlaug og nýja íþróttaaðstöðu. Einnig er í undirbúningi að innrétta félagsmiðstöð við Austurbæjarskóla í gömlu spennistöðinni við hlið skólans.
Við Hamraskóla í Grafarvogi hefst síðari áfangi við endurgerð skólalóðar og verða leiktæki og fallvarnarefni endurnýjuð. Framkvæmdum á skólalóð Réttarholtsskóla verður fram haldið og aðkoma að norðurhlið skólans lagfærð sem og svæðið milli íþróttahúss og verkmenntahúss. Við Seljaskóla verður lokið endurbótum á lóðinni og m.a. settir upp tveir körfuboltavellir með boltadempun, rólur og pókó-vellir. Þá stendur til að setja upp boltagerði við Engjaskóla og Fossvogsskóla.
Leikskólinn Laugasól fær stærra og betra leiksvæði
Unnið verður við endurgerð og frágang nokkurra leikskólalóða; við Árborg, Laugasól og sameiginlega lóð Rauðhóls og Norðlingaskóla. Öll lóðin við sameinaða leikskólann Laugasól, áður Lækjarborg og Laugaborg, hefur verið stækkuð og í sumar verða leiktæki að hluta til endurnýjuð og upphitaður stígur lagður á milli húsa svo samnýta megi þau og eldhúsið betur.
Framkvæmdum við lóð Árborgar verður fram haldið, leiktæki endurnýjuð og leiktorg hellulagt.
Við sameiginlegan leik- og grunnskóla í Norðlingaholti er ein glæsilegasta skólalóð borgarinnar að verða til. Unnið verður við frágang lóðarinnar sem þjónar bæði nýjum leikskóla og grunnskólanum.