Jón Gnarr borgarstjóri afhenti í dag spjaldtölvur sem staðsettar verða í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar. Þær eru einkum ætlaðar til að auka aðgengi eldra fólks að netinu en verða öllum aðgengilegar.
Á síðustu tveimur árum hafa á annað þúsund Reykvíkinga, á aldrinum 67 ára og eldri, sótt tölvufærninámskeið í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Þessi aldurshópur notar netið í sífellt meira mæli og þeir sem sækja þessi námskeið læra að nota netið til að hafa samskipti við sína nánustu í gegnum samfélagsmiðla eins og t.d. Facebook og Skype.
Með tilkomu netsins hefur orðið bylting í þjónustu opinberra aðila og fyrirtækja þar sem þjónusta sem áður var veitt maður á mann er nú aðgengileg á netinu. Sama má segja um alla upplýsingagjöf og upplýsingaflæði, hvort sem um er að ræða fréttir, umræður eða upplýsingagjöf opinberra aðila og fyrirtækja. Þessi nýi veruleiki krefst þess að fólk tileinki sér netið og læri að nota það sér til hagsbóta.
Opinber tölfræði sýnir að fólk í aldurshópnum 67 ára og eldri veigrar sér við að nota tölvur og fer minna á netið en aðrir hópar - og konur enn síður en karlmenn. Reykjavíkurborg hefur boðið upp á námskeið með það að markmiði að auka tölvufærni og kenna fólki að tileinka sér netið og standa þannig jafnfætis öðrum hópum í samfélaginu.
Athygli hefur vakið að margir úr þeim hópi sem sótt hafa tölvufærninámskeið hafa náð betri árangri þegar kennt er á spjaldtölvur þar sem ekki þarf að nota mús eða lyklaborð heldur bara fylgja leiðbeiningum á skjá og ýta á rétta staði til að komast áfram.
Reykjavíkurborg, í samstarfi við Apple á Íslandi, ákvað að bregðast við þessu með því að koma fyrir iPad spjaldtölvum í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Spjaldtölvunum verður komið fyrir á félagsmiðstöðvunum á næstu dögum.Þær fyrstu voru settar upp í Gerðubergi í dag og verða framvegis hluti af námskeiðunum. Allir áhugasamir um tölvunámskeið Reykjavíkurborgar geta aflað sér upplýsinga á heimasíðunni www.reykjaviki.is/a.