Allar jólavættir Reykjavíkurborgar eru búnar að koma sér fyrir í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi og ætla að gleðja gesti safnsins allan mánuðinn.
Allar jólavættir Reykjavíkurborgar eru búnar að koma sér fyrir í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi og ætla að gleðja gesti safnsins allan mánuðinn. Jólavættunum er ætlað að kynna sérstöðu Reykjavíkurborgar fyrir innlendum og erlendum gestum hennar. Þær hafa jafnframt komið sér fyrir húsveggjum víðsvegar um borgina þar sem þeim er hampað. Samfara því er í gangi spennandi ratleikur ,,Leitin að jólavættunum“ sem byggist á að finna vættirnar og svara léttum og skemmtilegum spurningum um þær. Hægt er að nálgast ratleikinn á Höfuðborgarstofu, á söfnum borgarinnar og í verslunum í miðbænum. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann sem sigrar í leiknum en úrslitin í honum verða kynnt 21. desember. Það er því tilvalið fyrir fjölskyldur að koma við í Listasafni Reykjavíkur- Hafnarhúsi, kíkja á allar jólavættirnar á einum stað og leita síðan af hverri og einni á húsveggjum borgarinnar.