ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Uppskeruhátíð í Brekkuborg
Börnin í leikskólanum Brekkuborg hafa á undanförnum vikum verið að taka upp kartöflur og annað grænmeti sem þau settu niður í vor. Þá hafa börnin tínt rifsber sem matráður leikskólans hefur gert sultu úr.
Á dögunum héldu þau svo uppskeruhátíð með grænmetishlaðborði þar sem börn og starfsmenn nutu uppskeru sumarsins.