Uppskeruhátíð í Brekkuborg

Börnin  í leikskólanum Brekkuborg  hafa á undanförnum vikum verið að taka upp kartöflur og annað grænmeti sem þau settu niður í vor.  Þá hafa börnin tínt rifsber sem matráður leikskólans hefur gert sultu úr.

Á dögunum héldu þau svo uppskeruhátíð með grænmetishlaðborði þar sem börn og starfsmenn nutu uppskeru sumarsins.