Unglingamenningin blómstrar á Félagsmiðstöðvadeginum

Í dag 7. nóvember standa félagsmiðstöðvar á Íslandi og SAMFÉS fyrir svokölluðum Félagsmiðstöðvadegi. Félagsmiðstöðvar í Reykjavík taka af því tilefni vel á móti gestum frá klukkan 18.00 og fram á kvöld.

Dagur félagsmiðstöðvanna er nú haldinn hátíðlegur áttunda árið í röð, en fyrst var efnt til hans í Reykjavík 2005. Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi hafa jafnframt gert daginn að sínum og nú í annað sinn. Markmið þessa dags er að gefa ungum og öldnum tækifæri til  að heimsækja félagsmiðstöðina í sínu hverfi, kynnast því metnaðarfulla fagstarfi sem þar fer fram, unglingunum sjálfum og daglegum viðfangsefnum þeirra.  Allir eru velkomnir, sérstaklega foreldrar og „gamlir“ unglingar sem vilja rifja upp kynnin við gömlu félagsmiðstöðina sína.

Unglingarnir og unglingaráð félagsmiðstöðvanna bera hitann og þungann af undirbúningi dagsins í Reykjavík með fjölbreyttri dagskrá. Þar fær unglingamenningin að njóta sín, s.s. í hönnun, kvikmyndagerð, tónlist, dansi, leiklist og myndlist. Lögð verður megináhersla á að sýna sköpunargleði unglinganna enda eru þeir mótandi menningarafl í samtíð og framtíð.  Hvarvetna verður gestum boðið upp á kaffi og kökur og þeim mun gefast tækifæri til að taka þátt í leikjum og spili.

Sjá dagskrá félagsmiðstöðvanna á heimasíðum þeirra og hér að neðan:

Í Árbæ, Grafarholti og Norðlingaholti eru félagsmiðstöðvarnar Tían, Holtið og Fókus

Í Vesturbæ er félagsmiðstöðin Frosti

Í Grafarvogi og á Kjalarnesi eru félagsmiðstöðvarnar Dregyn, Fjörgyn, Flógyn, Púgyn og Sigyn

Í Miðborg og Hlíðum eru félagsmiðstöðvarnar Punktur.is, 100og1 og 105

Í Laugardal, Háaleiti og Vogum eru félagsmiðstöðvarnar Askja, Buskinn, Bústaðir, Laugó, Tónabær, og Þróttheimar

Í Breiðholti eru félagsmiðstöðvarnar Bakkinn, Hólmasel og Hundrað&ellefu

 

Dagskrá félagsmiðstöðvanna 7. nóvember.



Félagsmiðstöðin 111

Opnað klukkan 18 og lokað 21.Vöfflur og kaffi verður á boðstólnum. Foreldrar verða hvattir til þess að etja kappi við sína unglinga og jafnvel aðra foreldra í hefðbundnum félagsmiðstöðvaleikjum.

Félagmiðstöðin Bakkinn

Opið hús fyrir gesti og gangandi frá kl. 18.00 - 21.00. Á milli kl. 18.00 - 19.00 verður fólki velkomið að kíkja inn á Skrekksæfingu. Boðið verður upp á vöfflur, kakó og kaffi fyrir alla. Einnig stjórna Bakkanefndarmeðlimir leikjum fyrir yngri kynslóðina.

Félagsmiðstöðin Buskinn

Húsið verður opið frá kl. 18.00 - 21.00. Stelpurnar úr Stelpuklúbbi Buskans bjóða upp á kaffi og kökur sem þær sjálfar hafa bakað og svo verður frumsýnd stuttmynd um félagsmiðstöðina sem nokkrar stelpur úr 10.bekk hafa unnið að. Við hvetjum sem flesta til þess að kíkja við, drekka smá kaffi og kynna sér það fjölbreytta starf sem félagsmiðstöðin býður upp á. 

Félagsmiðstöðin Dregyn

Unglingar, börn, foreldrar, forráðamenn, systkini, fyrrum unglingar og aðrir sem vilja kynnast starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Dregyn eru velkomnir milli kl 18 - 20.

Kl. 18.00 – Húsið opnar

Forseti nemendaráðs og verkefnisstjóri taka á móti gestum.

Nemendaráð dreifir kynningarblaði um félagsmiðstöðina.

Foreldrar og nemendur 10. bekkjar með kók, pylsur og súkkulaðistykki til sölu.

Nemendaráð Dregyn leiðir gesti og gangandi um aðstöðu félagsmiðstöðvarinnar.

Kl. 18:30 hefjast skemmtiatriði nemendaráðs, dregið í happdrætti nemendaráðs (allir fá lukkunúmer við komu), brandarahorn Alla og tónlistar- og dansatriði úr Skrekksatriði Vættaskóla

Kl. 19:00 gefst foreldrum tækifæri á að skora á unglinga og börn í ýmsum greinum t.d. pool, borðtennis, playstation 3, wii, pílukasti, pókó og fleiru.

Félagsmiðstöðin Fjörgyn

Milli 18.00 - 18.30  tekur nemendaráð tekur á móti foreldrum og öðrum gestum. Veitinga- og kaffisala verður í gangi auk þess sem slideshow með myndum úr starfinu það sem af er hausti verður í gangi.

Kl. 18.30 - 18.45 Nemendaráð verður með kynningu á starfi Fjörgynjar veturinn 2012 - 2013 og farið verður yfir dagskrá kvöldsins.

Kl. 18.45 - 19.00 Skrekks-atriði Foldaskóla 2012 sýnt fyrir foreldrum og öðrum gestum. 

Kl. 19.00 - 19.20 Opið hús þar sem foreldrar og krakkar keppa sín á milli í borðtennis, pool, play station, spilum o.s.frv.

Kl. 19.20 - 19.40 Tónlistaratriði frá tónlistarklúbbi Fjörgynjar.

Kl. 19.45 - 20.00 Skrekksatriði Foldaskóla 2012 sýnt fyrir foreldrum og öðrum gestum. 

Kl. 20.00 - 21.00 Formlegri dagskrá lokið en síðasta klukkutímann gefst gestum tækifæri til þess að upplifa hefðbundið opið hús í Fjörgyn og spjalla við starfsfólk um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar og það sem framundan er.

Félagsmiðstöðin Fókus

Opið hús frá 18.00 - 21.00 fyrir alla í Fókus. Allir krakkar í hverfinu eru hvattir til að mæta með foreldra, ömmur og afa, frænkur og frændur eða aðra fjölskyldumeðlimi með sér. Dj-ráð mun spila, og sýndar verða myndir úr starfinu. Þá verður opið í billa og borðtennis. Fókusráð mun bera fram veitingar. Kl. 18.30 munu Skrekks-hópar Sæmundarskóla og Ingunnarskóla sýna atriðin sín í Ingunnarskóla

19.30 – Kökur og kaffi í Fókus.



Félagsmiðstöðin Holtið

Dagskráin hefst klukkan 18.00 og verða veitingar til sölu. Það eru nemendur í 10.bekk og foreldrar þeirra sem sjá um kaffisöluna en ágóðann ætla þau að nota upp í útskriftarferð sína í vor. Unglingar verða með spurningakeppni, söngatriði og mögulega verður Skrekksatriðið sýnt. Þá mun strákaliðið okkar sem vann undankeppnina í Stíl koma fram í gallanum. Farið verður í pógó, borðtennis og pool og ætla unglingar að skora á foreldra sína. Loks verður félagsmiðstöðin kynnt og verður kynningin í höndum formanns og varaformanns Holtsráðsins.

Félagsmiðstöðin Hólmasel

Verður með kaffihúsakvöld frá kl 18.00 - 21.00. Unglingar félagsmiðstöðvarinn munu sjá um að skemmta gestum og gangandi ásamt því sem þátttakendur í STÍL 2012 verða að vinna hörðum höndum að hönnun sinni. Myndum af starfinu verður varpað upp á vegg og fólki mun gefast kostur á að prófa hin hefðbundnu „félagsmiðstöðvar leikföng“ eins og borðtennis, pool, fússball, PS3 o.fl. Hólmaselsráð mun bjóða upp á heitt kakó, vöfflur og muffins.

Félagsmiðstöðin Laugó

Milli 17.00 og 18.00 bjóðum við fjölskyldum 5. - 7. bekkjar í Laugalækjar- og Laugarnesskóla velkomin í heimsókn. Heitt kaffi á könnunni og kex í boði. Milli 19.30 og 22.00 bjóðum við fjölskyldum 8. - 10. bekkjar í Laugalækjarskóla velkomin í heimsókn. Þá mun Skrekkshópurinn sýna atriðið sitt og vera með fjáröflun með köku- og kaffisölu.

Félagsmiðstöðin Sigyn

Foreldrar eru hvattir til að kíkja í heimsókn og spjalla við unglinga og starfsfólk um starfsemina og spyrja spurninga eins og t.d. hverjir eru það sem eru að vinna með unglingunum, hvað er SAMFÉS, hvað er klúbbastarf, opið hús og svo framvegis.

18.00 - 21.00: Húsið opnar. Formaður nemendaráðs tekur á móti gestum

18.15/18.30: Skrekks-atriði sýnt

18.45 - 21.00: Nemendaráð sér um foreldra á móti unglingum keppnir

18.00 - 21.00: Nemendaráð sér um veitingar sem verða í boði fyrir gesti.

Félagsmiðstöðin Tónabær

Við í Tónabæ verðum með opið hús á Félagsmiðstöðvadaginn frá 18.00 - 21.00.

Það verður heitt á könnunni, heimabakstur í boði unglinganna okkar og myndasýning úr starfinu á veggjum.

Félagsmiðstöðin Þróttheimar

Í ár hafa nemendur í tómstunda -og félagsmálafræði í Langholtsskóla tekið að sér að skipuleggja daginn í félagsmiðstöðinni Þróttheimum, við Holtaveg 11. Opið verður frá klukkan 18.00 - 21.00. Við munum bjóða upp á andlistmálningu fyrir börnin, hægt verður að láta taka mynd af sér í búningaherberginu og svo munu unglingar vera með skemmtiatriði af ýmsum toga allt kvöldið.

Andlitsmálun frá 6 - 8

Myndataka í búningaherbergi frá 6 - 9

Tónlistaratriði frá nokkrum unglingum dreifist jafnt yfir kvöldið.

Léttar kaffiveitingar í boði.