Umsókn um styrki úr borgarsjóði
Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.
Styrkirnir eru ætlaðir viðburðum eða verkefnum sem koma til framkvæmda á næsta ári.
Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis.
Auglýsing um styrkumsóknir fyrir árið 2013.
Umsóknir um styrki fara nú fram í Rafrænni Reykjavík.
Athugið að umsóknir vegna starfsemi á árinu 2013 verða aðgengilegar í Rafrænu Reykjavík 3. september 2012.
Til að nálgast umsóknareyðublað þarf að byrja á að skrá sig inn í Rafræna Reykjavík.
Leiðbeiningar fyrir einstaklinga:
Hafi umsækjandi ekki áður skráð sig í Rafræna Reykjavík þarf að stofna nýjan aðgang með kennitölu viðkomandi einstaklings eða fyrirtækis og fá lykilorð sent í heimabanka umsækjanda. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Stjórnsýsla“ er smellt á „Umsókn um styrk úr borgarsjóði“. Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana í Rafrænni Reykjavík og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.
Leiðbeiningar fyrir fyrirtæki/félagasamtök:
Umsókn um aðgang að fyrirtækjagátt. Þar þarf að skrá fyrirtækið og fá aðgang að Rafrænni Reykjavík. Þegar aðgangsorð hefur verið sent í heimabanka fyrirtækisins er hægt að skrá sig inn á forsíðu Rafrænnar Reykjavíkur. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Stjórnsýsla“ er smellt á „Umsókn um styrk úr borgarsjóði“.
Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana í Rafrænni Reykjavík og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.
ATH. Nú er ekki gert ráð fyrir eins mörgum reitum til að fylla inn í allar þær upplýsingar sem þurfa að fylgja, eins og var í eldra umsóknarformi, heldur er óskað eftir að umsækjendur sendi ákveðnar upplýsingar í viðhengi sem hægt er að tengja við umsóknareyðublaðið.
Þessar upplýsingar þurfa að fylgja í viðhengi svo umsókn verði tekin gild:
- Markmið verkefnis eða starfsemi
- Verk- og tímaáætlun
- Önnur fjármögnun eða starfsemi
- Kostnaðaráætlun (tekjur/gjöld)
Sjá nánar á umsóknareyðublaði.
Umsókn skal berast eigi síðar en 1. október 2012. Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Þeir aðilar sem fengið hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfnun þess fjár.
Fyrirspurnir má senda á netfangið styrkir@reykjavik.is
Áherslur einstakra ráða og nefnda.
Greinargerð um ráðstöfun styrkja.