Umsókn um styrki úr borgarsjóði

Reykjavíkurborg veitir ár hvert félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum styrki til starfsemi og þjónustu sem fellur að hlutverki sveitarfélagsins eða telst á annan hátt í samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.

Styrkirnir eru ætlaðir viðburðum eða verkefnum sem koma til framkvæmda á næsta ári.

Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Styrkveiting felur ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis.

Auglýsing um styrkumsóknir fyrir árið 2013.

 Polski

 English

Umsóknir um styrki fara nú fram í Rafrænni Reykjavík. 

Athugið að umsóknir vegna starfsemi á árinu 2013 verða aðgengilegar í Rafrænu Reykjavík 3. september 2012.

Til að nálgast umsóknareyðublað þarf að byrja á að skrá sig inn í Rafræna Reykjavík.



Leiðbeiningar fyrir einstaklinga:

Hafi umsækjandi ekki áður skráð sig í Rafræna Reykjavík þarf að stofna nýjan aðgang með kennitölu viðkomandi einstaklings eða fyrirtækis og fá lykilorð sent í heimabanka umsækjanda. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Stjórnsýsla“ er smellt á „Umsókn um styrk úr borgarsjóði“. Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana í Rafrænni Reykjavík og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.

Leiðbeiningar fyrir fyrirtæki/félagasamtök:

Umsókn um aðgang að fyrirtækjagátt. Þar þarf að skrá fyrirtækið og fá aðgang að Rafrænni Reykjavík. Þegar aðgangsorð hefur verið sent í heimabanka fyrirtækisins er hægt að skrá sig inn á forsíðu Rafrænnar Reykjavíkur. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Stjórnsýsla“ er smellt á „Umsókn um styrk úr borgarsjóði“.

Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana í Rafrænni Reykjavík og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.

ATH. Nú er ekki gert ráð fyrir eins mörgum reitum til að fylla inn í allar þær upplýsingar sem þurfa að fylgja, eins og var í eldra umsóknarformi, heldur er óskað eftir að umsækjendur sendi ákveðnar upplýsingar í viðhengi sem hægt er að tengja við umsóknareyðublaðið.

Þessar upplýsingar þurfa að fylgja í viðhengi svo umsókn verði tekin gild:

  • Markmið verkefnis eða starfsemi 
  • Verk- og tímaáætlun 
  • Önnur fjármögnun eða starfsemi
  • Kostnaðaráætlun (tekjur/gjöld)

 

Sjá nánar á umsóknareyðublaði.

Umsókn skal berast eigi síðar en  1. október 2012. Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Reykjavíkurborgar kveða á um. Þeir aðilar sem fengið hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfnun þess fjár.

Fyrirspurnir má senda á netfangið styrkir@reykjavik.is

Reglur um styrki.

Áherslur einstakra ráða og nefnda.

Greinargerð um ráðstöfun styrkja.

 

 

 

Granty miasta Reykjavik



Grants