Tvöfaldur sigur Rimaskóla á jólaskákmóti SFS og TR

Rimaskóli bar sigur úr býtum í báðum yngri flokkum á jólaskákmótinu sem nú var haldið í 30. sinn. Melaskóli varð í öðru sæti og Kelduskóli í því þriðja. Keppt er í tveimur flokkum; annars vegar skáksveitir úr 1.-7. bekk og hins vegar úr 8.-10. bekk.



Sunnudaginn 2. desember var keppt í yngri flokki og veitt verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar. Einnig voru veitt verðlaun fyrir stúlknasveitir, en að þessu sinni var aðeins ein stúlknasveit með á mótinu og kom hún úr Rimaskóla. Stúlkur voru þannig í miklum minnihluta á þessu móti, eða einungis tíu af um 80 keppendum.

Leikar fóru svo í yngri flokki að Rimaskóli bar sigur úr býtum í báðum flokkunum en stúlknasveitin úr Rimaskóla lenti einnig í 4. sæti í heildarmótinu með 14 vinninga. A-sveit Rimaskóla fékk 21,5 vinning af 24 mögulegum. Melaskóli fékk 19,5 vinning og Kelduskóli 14,5 vinning.

Meðal keppenda voru mörg börn sem þegar hafa töluverða reynslu í keppni á skákmótum, svo lítið var um vafaatriði á meðan mótinu stóð sem skákstjórar þurftu að skera úr um. Margir foreldrar, systkini, afar og ömmur voru meðal áhorfenda sem setti skemmtilegan svip á mótið. 

Jólaskákmótið fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur og var Soffía Pálsdóttir mótstjóri. 

Keppt verður í eldri flokki mánudaginn 3. desember.

A sveit Rimaskóla í yngri flokki var skipuð

  1. Nansý Davíðsdóttur
  2. Jóhanni Arnari Finnssyni
  3. Kristófer Halldóri Kjartanssyni
  4. Joshua Davíðssyni

 

Melaskólaliðið var skipað:

  1. Kolbeini Ólafssyni
  2. Ellert Kristjáni Georgssyni
  3. Svava Þorsteinsdóttu
  4. Sigurði Kjartanssyni

     
  1. varam. Björn Ingi Helgason
  2. varam. Katrín Kristjánsdóttir 

 

Kelduskóli:

  1. Hilmir Hrafnsson
  2. Sigurður Bjarki Blumenstein
  3. Styrmir Rafn Ólafsson
  4. Hilmir Sigurðsson

 

  1. varam. Andri Gylfason



Rimaskólastúlkur:

  1. Svandís Rós Ríkharðsdóttir
  2. Heiðrún A. Hauksdóttir
  3. Ásdís Birna Þórarinsdóttir
  4. Tinna Sif Aðalsteinsdóttir