Tvöfaldur sigur Rimaskóla á jólaskákmóti SFS og TR
Rimaskóli bar sigur úr býtum í báðum yngri flokkum á jólaskákmótinu sem nú var haldið í 30. sinn. Melaskóli varð í öðru sæti og Kelduskóli í því þriðja. Keppt er í tveimur flokkum; annars vegar skáksveitir úr 1.-7. bekk og hins vegar úr 8.-10. bekk.
Sunnudaginn 2. desember var keppt í yngri flokki og veitt verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar. Einnig voru veitt verðlaun fyrir stúlknasveitir, en að þessu sinni var aðeins ein stúlknasveit með á mótinu og kom hún úr Rimaskóla. Stúlkur voru þannig í miklum minnihluta á þessu móti, eða einungis tíu af um 80 keppendum.
Leikar fóru svo í yngri flokki að Rimaskóli bar sigur úr býtum í báðum flokkunum en stúlknasveitin úr Rimaskóla lenti einnig í 4. sæti í heildarmótinu með 14 vinninga. A-sveit Rimaskóla fékk 21,5 vinning af 24 mögulegum. Melaskóli fékk 19,5 vinning og Kelduskóli 14,5 vinning.
Meðal keppenda voru mörg börn sem þegar hafa töluverða reynslu í keppni á skákmótum, svo lítið var um vafaatriði á meðan mótinu stóð sem skákstjórar þurftu að skera úr um. Margir foreldrar, systkini, afar og ömmur voru meðal áhorfenda sem setti skemmtilegan svip á mótið.
Jólaskákmótið fór fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur og var Soffía Pálsdóttir mótstjóri.
Keppt verður í eldri flokki mánudaginn 3. desember.
A sveit Rimaskóla í yngri flokki var skipuð
- Nansý Davíðsdóttur
- Jóhanni Arnari Finnssyni
- Kristófer Halldóri Kjartanssyni
- Joshua Davíðssyni
Melaskólaliðið var skipað:
- Kolbeini Ólafssyni
- Ellert Kristjáni Georgssyni
- Svava Þorsteinsdóttu
-
Sigurði Kjartanssyni
- varam. Björn Ingi Helgason
- varam. Katrín Kristjánsdóttir
Kelduskóli:
- Hilmir Hrafnsson
- Sigurður Bjarki Blumenstein
- Styrmir Rafn Ólafsson
- Hilmir Sigurðsson
- varam. Andri Gylfason
Rimaskólastúlkur:
- Svandís Rós Ríkharðsdóttir
- Heiðrún A. Hauksdóttir
- Ásdís Birna Þórarinsdóttir
- Tinna Sif Aðalsteinsdóttir