Tríóið „Tvær á palli með einum kalli” í Viðeyjarstofu í kvöld
Tríóið “Tvær á palli með einum kalli” spila og syngja í Viðeyjarstofu fimmtudagskvöldið 25. október.
Tríóið skipa þau Edda og Helga Þórarinsdætur ásamt Kristjáni Hrannari Pálssyni. Eddu kannast margir við úr leikhúsum landsins en einnig úr Tríóinu “Þrjú á palli” sem naut gífurlegra vinsælda hér á árum áður. Nýverið dreif hún víóluleikarann systur sína píanósnillinginn Hrannar af stað í þetta lifandi og skemmtilega tríó. Þau flytja saman uppáhaldslögin sín úr íslenskum og erlendum kvikmyndum.
Í Viðeyjarstofu eru ljúffengar veitingar á boðstólnum, tónleikagestir geta notið kvöldverðar fyrir tónleikana og þurfa þá að panta borð í síma 533 – 5055 eða videyjarstofa@videyjarstofa.is.
Sigling fyrir matargesti er frá Skarfabakka kl. 18.15.
Aðrir tónleikagestir sigla frá Skarfabakka kl. 19.15.
Miðar seldir á midi.is. Verð fyrir tónleikana og ferjuna er 3.000 kr. og 4.900 kr. þriggja rétta kvöldverð.