Tríóið „Tvær á palli með einum kalli” í Viðeyjarstofu í kvöld

Tríóið “Tvær á palli með einum kalli” spila og syngja í Viðeyjarstofu fimmtu­dags­kvöldið 25. október.

Tríóið skipa þau Edda og Helga Þór­ar­ins­dætur ásamt Kristjáni Hrannari Pálssyni. Eddu kann­ast margir við úr leik­húsum lands­ins en einnig úr Tríóinu “Þrjú á palli” sem naut gíf­ur­legra vin­sælda hér á árum áður. Nýverið dreif hún víólu­leik­ar­ann systur sína píanósnill­ing­inn Hrannar af stað í þetta lif­andi og skemmti­lega tríó. Þau flytja saman upp­á­halds­lögin sín úr íslenskum og erlendum kvikmyndum.

Í Viðeyjarstofu eru ljúf­fengar veit­ingar á boð­stólnum, tón­leika­gestir geta notið kvöld­verðar fyrir tón­leik­ana og þurfa þá að panta borð í síma 533 – 5055 eða  videyjarstofa@videyjarstofa.is.

Sigling fyrir mat­ar­gesti er frá Skarfabakka kl. 18.15.

Aðrir tón­leika­gestir sigla frá Skarfabakka kl. 19.15.

Miðar seldir á midi.is. Verð fyrir tón­leik­ana og ferj­una er 3.000 kr. og 4.900 kr. þriggja rétta kvöldverð.

www.videy.com.