Skýrsla úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur kynnt
Skýrsla úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur var kynnt fyrir eigendum fyrirtækisins á eigendafundi í höfuðstöðvum Orkuveitunnar í dag kl. 15. Í beinu framhaldi var haldinn kynningarfundur fyrir sveitastjórnarfólk en á fundinn voru boðaðir aðalmenn í sveitarstjórnum eigendasveitarfélaganna og fyrstu varamenn auk aðalstjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Klukkan 17.15 hófst síðan blaðamannafundur þar sem fulltrúar fjölmiðla fá sömu kynningu og sveitastjórnarfólkið.
Í úttektarnefndinni sitja Margrét Pétursdóttir endurskoðandi, Ása Ólafsdóttir hæstaréttarlögmaður og Ómar Kristmundsson stjórnsýslufræðingur. Nefndin hefur verið að störfum frá 23. júní 2011.
Skýrsla úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur(PDF skjal 8.12 MB).
Glærukynning úttektarnefndar frá blaðamannafundi 10. október (PDF skjal 1,02 MB).