Mannréttindaskrifstofa borgarinnar hélt sl. mánudag vel heppnaðan fund um sjálfstæði og val eldra fólks. Þar tóku til máls Berglind Magnúsdóttir sálfræðingur og flutti hún erindið; Að eiga val. Þar fjallaði Berglind m.a. um mikilvægi hreyfingar, virkrar hugsunar og virkrar þátttöku eftirlaunaþega í samfélaginu.
Jón Benedikt Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur, dró upp mjög skemmtilega mynd af öldrun, mannréttindum og menningu.
Sigrún Huld Þorgrímsdóttir flutti erindið; Sjálfræði aldraðra þar sem hún fjallaði m.a. um valdbeitingu gagnvart öldruðum á stofnunum.
Að lokum ræddi Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir um þriðja æviskeiðið og ný tækifæri þar sem hún vísaði í eigin reynslu.
Niðurstaða fundarins var að ekki er hægt að tala um eldri borgara sem einlitan og einsleitan hóp heldur er hann margbreytilegur. Það væri fremur við hæfi að tala um sjálfstæði og val ólíkra einstaklinga sem kannski eru komnir af léttasta skeiði.
Að eiga val - Berglind Magnúsdóttir, sálfræðings.
Um menningu og mannréttindi - Jón Benedikt Björnsson, sálfræðingur og rithöfundur.
Sjálfræði aldraðra - Sigrún Huld Þorgrímsdóttir, öldrunarhjúkrunarfræðingur.
Þriðja æviskeiðið - Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir, eftirlaunaþegi.