Reykjavík gegn ofbeldi
Nú stendur yfir 16 daga alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi. Fulltrúar í mannréttindaráði og starfsfólk borgarinnar hafa tekið höndum saman og ætla að fjalla um kynbundið ofbeldi, hver með sínum hætti, á vef borgarinnar. Á hverjum degi á þessu tímabili mun birtast ljóð, lag, hugleiðing eða örsaga um efnið. Höfundar hafa valið sér myndskreyti til að vinna með. Það er Margrét Sverrisdóttir formaður mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar sem ríður á vaðið í dag.
Borgarráð samþykkti í sumar aðgerðaráætlun Reykjavíkurborgar gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum.
Reykjavíkurborg hefur einnig sett upp vefi á íslensku, pólsku og ensku þar sem finna má upplýsingar um það hvert er hægt að leita verði viðkomandi fyrir ofbeldi, sjá http://reykjavik.is/en.
Reykjavíkurborg er á móti öllu ofbeldi. Stöndum saman gegn ofbeldi heima, í Reykjavík og að heiman.