Nýtt umhverfis- og skipulagssvið kynnt
Í dag lagði borgarstjóri fram tillögu í borgarráði um víðtækar stjórnkerfisbreytingar hjá Reykjavíkurborg. Samkvæmt tillögunni munu þrjú svið borgarinnar sameinast, framkvæmda- og eignasvið, umhverfis- og samgöngusvið og skipulags- og byggingarsvið og til verður nýtt umhverfis- og skipulagssvið. Við breytingarnar verða gömlu sviðin lögð niður. Einnig verður stofnsett ný skrifstofa eigna og atvinnuþróunar.
Undirbúningsvinna fyrir breytingarnar hefur staðið yfir í nokkurn tíma og hefur stýrihópur unnið að undirbúningi tillögunnar frá 18. ágúst 2011. Þá hafa starfsmenn sviðanna tekið þátt í svokölluðum heimskaffifundum þar sem starfsemi sviðanna var rædd. Á þeim fundum komu fram fjölmargar góðar hugmyndir.
Tilgangurinn með sameiningu þessara sviða, sem hafa verið kölluð „hörðu“ sviðin innan stjórnsýslunnar er fyrst og fremst sá að gera þjónustu Reykjavíkurborgar skilvirkari og aðgengilegri. Nýtt umhverfis- og skipulagssvið á að tryggja árangur í lykilverkefnum á sviði umhverfis- og skipulagsmála, umhirðu og framkvæmda og efla frumkvæði varðandi þætti eins og fegrun og hreinsun borgarlandsins og stuðla að hagræðingu í rekstri.
Umhverfis- og skipulagssvið mun annast alla starfsemi borgarinnar í skipulagsmálum auk stefnumótunar í umhverfismálum. Hið nýja svið mun sjá um hreinsun, garðyrkju, fegrun, umhverfisvöktun og sorphirðu í Reykjavík auk þess sem það mun reka hverfastöðvar og verkbækistöðvar. Verkefni af þessum toga hafa að vissu leyti skarast hjá Reykjavíkurborg en verða nú á ábyrgð eins sviðs. Að auki mun nýja sviðið sjá um viðhald og framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar og annast heilbrigðiseftirlit og byggingaeftirlit.
Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar mun fara með málefni eignasjóðs Reykjavíkurborgar. Hún mun leiða vinnu við fjárfestingaráætlun nýframkvæmda og áætlanir um kaup og sölu eigna. Þá mun skrifstofan sjá um markaðssetningu og þróun lands og framkvæma stefnu borgarinnar í atvinnumálum í samráði við fagsvið og hagsmunaaðila og hafa umsjón með hlutafélögum og miðborgarverkefnum.
Stöður sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og skrifstofustjóra eigna og atvinnuþróunar verða auglýstar lausar til umsóknar. Sviðsstjórastöður sviðanna sem sameinast verða lagðar niður.
Tillögurnar munu nú fara til umfjöllunar í stjórnkerfisnefnd Reykjavíkurborgar, síðan aftur fyrir borgarráð og að lokum til samþykktar í borgarstjórn.
Miðað er við að breytingarnar verði komnar að fullu til framkvæmda þann 1. janúar 2013 þegar nýtt umhverfis- og skipulagsráð tekur til starfa.
Einnig var lögð fram tillaga um breytt skipurit fyrir miðlæga stjórnsýslu hjá Reykjavíkurborg sem hefur það að markmiði að efla og einfalda miðlæga stjórnsýslu og ná fram hagræðingu. Þá er lagt til að stofnað verði nýtt embætti umboðsmanns borgarbúa sem verður staðsettur á skrifstofu borgarstjórnar.
Tillaga um nýtt umhverfis- og skipulagssvið og nýja skrifstofu eigna og atvinnuþróunar (PDF 786KB).