Nýráðnir skrifstofustjórar á umhverfis- og skipulagssviði
Gengið hefur verið frá ráðningum fimm nýrra skrifstofustjóra á hinu nýja umhverfis og skipulagssviði. Þeir munu hefja störf um áramót þegar nýtt svið tekur til starfa.
Skrifstofustjóri skrifstofu sviðsstjóra
Örn Sigurðsson
Embættis/ meistarapróf í lögfræði
1981 Hdl. réttindi
1978 Háskóli Íslands, Cand.Juris
Örn hefur gegnt stjórnunarstörfum í fjölmörg ár, bæði í einkageiranum og innan stjórnsýslunnar.
Frá árinu 1998 hefur hann gegnt stjórnunarstörfum innan Reykjavíkurborgar, í fyrstu sem skrifstofustjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, skrifstofustjóri umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, síðar umhverfissviðs, og var hann þá jafnframt staðgengill sviðsstjóra. Hann var sviðsstjóri umhverfissviðs um nokkurt skeið og síðan skrifstofustjóri og staðgengill sviðsstjóra umhverfis- og samgöngusviðs frá 2008.
Frá október 2011 hefur hann verið sviðsstjóri umhverfis- og samgöngusviðs auk þess sem hann um tíma sinnti jafnframt starfi skrifstofustjóra borgarstjórnar. Örn mun gegna hlutverki staðgengils sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs.
Skrifstofa umhverfisgæða
Guðmundur B. Friðriksson
1999 DTU, Kaupmannahöfn M.Sc. í umhverfisverkfræði
1997 Háskóla Íslands, 1997. B.Sc. í efnafræði
Leyfi umhverfisráðherra til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi.
Guðmundur hefur starfað sem skrifstofustjóri sl. 7 ár á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og stýrt þar skrifstofu neyslu og úrgangs . Hann átti stærstan þátt í gerð og innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar og hefur haft yfirumsjón með kerfinu sem umhverfis- og gæðastjóri . Áður vann hann sem deildarstjóri á umhverfis –og heilbrigðissviði og hafði þá yfirumsjón með sorphirðu í Reykjavík, meindýravörnum, hundahaldi, búfjárhaldi og vörslu borgarlands.
Skrifstofa skipulags, bygginga og borgarhönnunar
Nikulás Úlfar Másson
1985 University of Portsmouth, school of Architecture, Englandi, arkitekt MA
Hefur sótt fjölda námskeiða á Norðurlöndum og í Englandi um minjavernd og skipulag
Nikulás Úlfar hefur starfað sem forstöðumaður stofnana í stjórnsýslunni, og má þar nefna að hann hefur sinnt starfi forstöðumanns Húsafriðunarnefndar sl. 5 ár. Hann var settur síðastliðið ár (2011-2012) sem forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins, deildarstjóri húsadeildar Árbæjarsafns (1991-2001) og staðgengill borgarminjavarðar. Árin 2001-2007 var hann verkefnis- og teymisstjóri hjá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar, og hafði þá m.a. með höndum verkefnisstjórnun vegna vinnu við gerð deiliskipulags. Nikulás er því bæði vel kunnur stjórnsýslu og verkferlum hjá Reykjavíkurborg.
Skrifstofa framkvæmda og viðhalds mannvirkja
Ámundi V. Brynjólfsson
1985 Tækniskóli Íslands B.Sc. byggingatæknifræði
1987 Herriot-Watt University, Edinborg M.Asc. verkfræði með verkefnastjórnun sem valgrein.
Ámundi hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá 1985, í fyrstu hjá byggingardeild Borgarverkfræðings , sem síðar varð fasteignastofa framkvæmdasviðs og vann þar við hönnunar – og byggingarstjórn. Frá 2005 hefur hann starfað sem skrifstofustjóri mannvirkjaskrifstofu. Ámundi á langan feril innan borgarkerfisins, bæði sem stjórnandi og áður sem sérfræðingur á sínu fagsviði.
Skrifstofa reksturs og umhirðu borgarlandsins
Guðjóna Björk Sigurðardóttir
2008 Viðskiptaháskólinn á Bifröst. M.sc. hagnýt hagvísindi. Lokaverkefni; Gæðastjórnun verktaka í mannvirkjagerð á Íslandi.
2005 Viðskiptaháskólinn á Bifröst. B. Sc. viðskiptafræði
2004 Viðskiptaháskólinn á Bifröst. Diploma, rekstrarfræði
Guðjóna hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá árinu 2008 fyrst á fjármálaskrifstofu, en undanfarin tvö ár sem yfirmaður hverfastöðva framkvæmda-og eignasviðs (Njarðargata-Miklatún). Guðjóna er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í hagnýtum vísindum sem er þverfaglegt stjórnunarnám. Guðjóna hefur mikla reynslu af innleiðingu öryggis – og gæðamála