Nýráðnir skrifstofustjórar á umhverfis- og skipulagssviði

Gengið hefur verið frá ráðningum fimm nýrra skrifstofustjóra á hinu nýja umhverfis og skipulagssviði. Þeir munu hefja störf um áramót þegar nýtt svið tekur til starfa.   

Skrifstofustjóri skrifstofu sviðsstjóra 

Örn Sigurðsson

Embættis/ meistarapróf í lögfræði

1981      Hdl. réttindi

1978      Háskóli Íslands, Cand.Juris 

Örn hefur gegnt stjórnunarstörfum í fjölmörg ár, bæði í einkageiranum og innan stjórnsýslunnar. 

Frá árinu 1998 hefur hann gegnt stjórnunarstörfum innan Reykjavíkurborgar, í fyrstu sem skrifstofustjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, skrifstofustjóri umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur, síðar umhverfissviðs, og var hann þá jafnframt staðgengill sviðsstjóra.  Hann var  sviðsstjóri umhverfissviðs um nokkurt skeið og síðan skrifstofustjóri og staðgengill sviðsstjóra umhverfis- og samgöngusviðs frá 2008.

Frá október 2011 hefur hann verið sviðsstjóri umhverfis- og samgöngusviðs auk þess sem hann um tíma sinnti jafnframt starfi skrifstofustjóra borgarstjórnar. Örn mun gegna hlutverki staðgengils sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. 

 

Skrifstofa umhverfisgæða

Guðmundur B. Friðriksson

1999  DTU, Kaupmannahöfn M.Sc. í umhverfisverkfræði

1997  Háskóla Íslands, 1997. B.Sc. í efnafræði

Leyfi umhverfisráðherra til að starfa sem heilbrigðisfulltrúi. 

Guðmundur hefur starfað sem skrifstofustjóri sl. 7 ár á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur  og stýrt þar skrifstofu neyslu og úrgangs . Hann átti stærstan þátt í  gerð og innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar og hefur haft yfirumsjón með kerfinu sem umhverfis- og gæðastjóri . Áður vann hann sem deildarstjóri á umhverfis –og heilbrigðissviði og hafði þá yfirumsjón með sorphirðu í Reykjavík, meindýravörnum, hundahaldi, búfjárhaldi og vörslu borgarlands.

 

Skrifstofa skipulags, bygginga og borgarhönnunar

Nikulás Úlfar Másson

1985 University of Portsmouth, school of Architecture, Englandi, arkitekt MA

Hefur sótt fjölda námskeiða á Norðurlöndum og í Englandi um minjavernd og skipulag 

Nikulás Úlfar hefur starfað  sem forstöðumaður stofnana í stjórnsýslunni, og má þar nefna að hann hefur sinnt starfi forstöðumanns Húsafriðunarnefndar sl. 5 ár. Hann var settur  síðastliðið ár (2011-2012) sem forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins, deildarstjóri húsadeildar Árbæjarsafns (1991-2001) og staðgengill borgarminjavarðar.  Árin 2001-2007 var hann verkefnis- og teymisstjóri hjá skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar, og hafði þá m.a. með höndum verkefnisstjórnun vegna vinnu við gerð deiliskipulags.  Nikulás er því bæði vel kunnur stjórnsýslu og verkferlum hjá Reykjavíkurborg.

 

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds mannvirkja

Ámundi V. Brynjólfsson

1985 Tækniskóli Íslands B.Sc. byggingatæknifræði

1987 Herriot-Watt University, Edinborg M.Asc. verkfræði  með verkefnastjórnun sem valgrein. 

Ámundi  hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá 1985, í fyrstu hjá byggingardeild Borgarverkfræðings , sem síðar varð fasteignastofa framkvæmdasviðs og vann þar við hönnunar – og byggingarstjórn. Frá 2005 hefur hann starfað sem skrifstofustjóri mannvirkjaskrifstofu. Ámundi á langan feril innan borgarkerfisins, bæði sem stjórnandi og áður sem sérfræðingur á sínu fagsviði.  

 

Skrifstofa reksturs og umhirðu borgarlandsins

Guðjóna Björk Sigurðardóttir

2008  Viðskiptaháskólinn á Bifröst. M.sc. hagnýt hagvísindi. Lokaverkefni; Gæðastjórnun verktaka í mannvirkjagerð á Íslandi.

2005  Viðskiptaháskólinn á Bifröst. B. Sc. viðskiptafræði

2004  Viðskiptaháskólinn á Bifröst. Diploma, rekstrarfræði 

Guðjóna hefur starfað hjá Reykjavíkurborg frá árinu 2008 fyrst á fjármálaskrifstofu, en undanfarin tvö ár sem yfirmaður hverfastöðva framkvæmda-og eignasviðs (Njarðargata-Miklatún). Guðjóna er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í hagnýtum vísindum sem er þverfaglegt stjórnunarnám.  Guðjóna hefur mikla reynslu af innleiðingu öryggis – og gæðamála