Malbikun í Norðurfelli

Föstudaginn 5. október milli kl. 9 -14 verður unnið  við malbiksviðgerðir í Norðurfelli milli Breiðholtsbrautar og Vesturbergs. Vegna framkvæmdanna þarf að takmarka umferð tímabundið um götuna og verður henni  lokað í aðra átt í einu.  Reynt verður að hliðra til fyrir umferð eins og hægt er, t.d. að bensínstöð Skeljungs.

Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflun á umferð vegna framkvæmdanna og eru jafnframt beðnir um að sýna tillitssemi og fara eftir leiðbeiningum á vettvangi.  Valinn er sá tími til framkvæmda þegar umferð er alla jafna minnst.  Þeir sem þess eiga kost eru beðnir um að velja aðrar leiðir.