Malbikun í Norðurfelli
Föstudaginn 5. október milli kl. 9 -14 verður unnið við malbiksviðgerðir í Norðurfelli milli Breiðholtsbrautar og Vesturbergs. Vegna framkvæmdanna þarf að takmarka umferð tímabundið um götuna og verður henni lokað í aðra átt í einu. Reynt verður að hliðra til fyrir umferð eins og hægt er, t.d. að bensínstöð Skeljungs.
Vegfarendur eru beðnir velvirðingar á truflun á umferð vegna framkvæmdanna og eru jafnframt beðnir um að sýna tillitssemi og fara eftir leiðbeiningum á vettvangi. Valinn er sá tími til framkvæmda þegar umferð er alla jafna minnst. Þeir sem þess eiga kost eru beðnir um að velja aðrar leiðir.