Malbikað og steypt í veðurblíðunni

Í dag verður malbikaðaður kafli á nýjum hjóla- og göngustíg meðfram Suðurlandsbraut frá Engjateig að Kringlumýrarbraut.  Á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar verður  einnig unnið að malbiksviðgerðum í fráreinum eftir fræsingu fyrir ídráttarrör vegna umferðarljósa.  Vegna þessara framkvæmda þarf tímabundið og í stuttan tíma að loka umferð um fráreinar. Ökumenn eru beðnir um að sýna tillitsemi og aðgát við framkvæmdasvæðið.

Víða er verið að nota veðurblíðuna til framkvæmda og í morgun var verið að steypa gangstéttar við Álfheima.  Þær framkvæmdir tengjast einnig hjóla- og göngustígnum sem liggja mun frá Hlemmi að Elliðarárósum.  Auk lagningar stíga og bættra hraðahindrana verða umferðarljós á gatnamótum aðlöguð hjólandi umferð.