Malbikað og steypt í veðurblíðunni
Í dag verður malbikaðaður kafli á nýjum hjóla- og göngustíg meðfram Suðurlandsbraut frá Engjateig að Kringlumýrarbraut. Á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar verður einnig unnið að malbiksviðgerðum í fráreinum eftir fræsingu fyrir ídráttarrör vegna umferðarljósa. Vegna þessara framkvæmda þarf tímabundið og í stuttan tíma að loka umferð um fráreinar. Ökumenn eru beðnir um að sýna tillitsemi og aðgát við framkvæmdasvæðið.
Víða er verið að nota veðurblíðuna til framkvæmda og í morgun var verið að steypa gangstéttar við Álfheima. Þær framkvæmdir tengjast einnig hjóla- og göngustígnum sem liggja mun frá Hlemmi að Elliðarárósum. Auk lagningar stíga og bættra hraðahindrana verða umferðarljós á gatnamótum aðlöguð hjólandi umferð.