Listin leggur á Óðinstorgi

Í tilefni hins alþjóðlega Park(ing) Day mun stór hópur listafólks leggja undir sig bílastæðin á Óðinstorgi og umbreyta þeim í listgarða (Art Park) frá kl. 14 til 22 á morgun, föstudaginn 21. september. Boðið verður upp á margvíslega listviðburði svo sem gjörninga, málverk, skúlptúra, video, teikningar og hljóðverk. Einnig er boðið til tónlistarveislu í Skrímslagarðinum við Óðinstorg þar sem hópur tónlistafólks stígur á stokk og spilar milli klukkan 17 og 21.

Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Torg í biðstöðu hjá Reykjavíkurborg og Samgönguviku. Park(ing) Day hefur verið kallað stæðaæði á íslensku. 



Nánari upplýsingar:



Dagskrá ,,art Park(ing) Day Óðinstorgi“ - veggspjald viðburðarins (JPG mynd, 5,85 Mb).

Einnig eru upplýsingar að finna á facebook síðu aðstandenda viðburðar á Óðinstorgi.



Upplýsingar um stæðaæði í Reykjavík eru á www.reykjavik.is/staedaaedi.