Líf og fjör á opnunarhátíð Listar án landamæra

Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, setti þann 18. apríl hina árlegu listahátíð, List án landamæra, í ráðhúsi Reykjavíkur. Hátt í 400 - 500 manns sóttu setningarathöfnina í ráðhúsinu. Boðið var upp á skemmtidagskrá sem náði hápunkti þegar hljómsveitin Retro Stefson tók lagið við frábærar undirtektir viðstaddra.

Samtímis var opnuð listasýningin Þrívídd en þar má sjá fjölbreytt verk m.a. trékalla, 63 sauði, keramik- og mósaíkverk.

List án landamæra er árleg listahátíð með áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Allir sem vilja geta tekið þátt en að hátíðinni vinnur listafólk saman að allskonar list með frábærri útkomu. Það leiðir til auðugra samfélags og aukins skilnings manna á milli.

Hátíðin er vettvangur eða þak yfir viðburði og hefur það að markmiði að vera síbreytileg og lifandi. Þetta er í níunda sinn sem hátíðin fer fram en ákveðið var að efna til þessarar hátíðar á Evrópuári fatlaðra árið 2003. Það gekk vonum framar og í kjölfarið hefur hátíðin verið haldin árlega.

Markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi, fjölbreytni og jafnrétti í menningarlífinu. Með hátíðinni er stefnt að því að koma list fólks með fötlun á framfæri og koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni.