Laus stjórnunarstörf á umhverfis- og skipulagssviði
Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar auglýsir lausar stöður fjármálastjóra og mannauðsstjóra. Stöðurnar heyra undir skrifstofu sviðsstjóra.
Umhverfis- og skipulagssvið er nýtt svið hjá Reykjavíkurborg sem tók til starfa 1. september sl. Undir sviðið heyra flest þau verkefni sem áður voru unnin af skipulags- og byggingarsviði, framkvæmda- og eignasviði og umhverfis- og samgöngusviði. Tilgangurinn með stofnun sviðsins er að tryggja samhæfða stefnumótun í málefnum sviðsins og heildstæða og skilvirka þjónustu við íbúa borgarinnar. Á sviðinu starfa um 400 starfsmenn í föstum störfum, en nokkur fjöldi bætist við á sumrin.
FJÁRMÁLASTJÓRI
Helstu verkefni fjármálastjóra er:
- Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum fjármálaþjónustu
- Umsjón með fjármálum, reikningshaldi, uppgjörum og fjárreiðum sviðsins
- Ábyrgð á gerð fjárhags- og rekstraráætlana
- Fjármálaleg ráðgjöf til stjórnenda sviðsins
- Fjárhagslegar úttektir, greiningar og eftirlit, þ.m.t. eftirlit með fjárhagsáætlun
- Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði fjármála, reikningshalds og fjárreiða
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi ð
- Víðtæk reynsla af fjármálastjórn í opinberum rekstri
- Þekking á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar og málaflokkum sviðsins
- Stjórnunarhæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
MANNAUÐSSTJÓRI
Helstu verkefni mannauðsstjóra eru:
- Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum mannauðsþjónustu
- Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði mannauðsmála hjá Reykjavíkurborg
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur, m.a. á sviði vinnuréttar, ráðninga og
- móttöku nýrra starfsmanna
- Ábyrgð á framkvæmd kjarasamninga og starfsmannastefnu
- Umsjón með gerð starfslýsinga, starfsþróun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Viðtæk reynsla á sviði mannauðsstjórnunar
- Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu og þekking á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar
- Stjórnunarhæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Leiðtogahæfi leikar og hæfni til samskipta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélaga. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Umsjón með störfunum hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Silja Jóhannesdóttir (silja.johannesdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 22. október nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.
Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.