Laus stjórnunarstörf á umhverfis- og skipulagssviði

Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar auglýsir lausar stöður fjármálastjóra og mannauðsstjóra. Stöðurnar heyra undir skrifstofu sviðsstjóra.

 Umhverfis- og skipulagssvið er nýtt svið hjá Reykjavíkurborg sem tók til starfa 1. september sl. Undir sviðið heyra flest þau verkefni sem áður voru unnin af skipulags- og byggingarsviði, framkvæmda- og eignasviði og umhverfis- og samgöngusviði. Tilgangurinn með stofnun sviðsins er að tryggja samhæfða stefnumótun í málefnum sviðsins og heildstæða og skilvirka þjónustu við íbúa borgarinnar. Á sviðinu starfa um 400 starfsmenn í föstum störfum, en nokkur fjöldi bætist við á sumrin.

 

FJÁRMÁLASTJÓRI

Helstu verkefni fjármálastjóra er:

  • Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum fjármálaþjónustu
  • Umsjón með fjármálum, reikningshaldi, uppgjörum og fjárreiðum sviðsins
  • Ábyrgð á gerð fjárhags- og rekstraráætlana
  • Fjármálaleg ráðgjöf til stjórnenda sviðsins
  • Fjárhagslegar úttektir, greiningar og eftirlit, þ.m.t. eftirlit með fjárhagsáætlun
  • Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði fjármála, reikningshalds og fjárreiða

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi ð
  • Víðtæk reynsla af fjármálastjórn í opinberum rekstri
  • Þekking á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar og málaflokkum sviðsins
  • Stjórnunarhæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð

 

MANNAUÐSSTJÓRI

Helstu verkefni mannauðsstjóra eru:

  • Fagleg forysta og verkstjórn á daglegum verkefnum mannauðsþjónustu
  • Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun á sviði mannauðsmála hjá Reykjavíkurborg
  • Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur, m.a. á sviði vinnuréttar, ráðninga og
  • móttöku nýrra starfsmanna
  • Ábyrgð á framkvæmd kjarasamninga og starfsmannastefnu
  • Umsjón með gerð starfslýsinga, starfsþróun og símenntun

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Viðtæk reynsla á sviði mannauðsstjórnunar
  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu og þekking á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar
  • Stjórnunarhæfni, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Leiðtogahæfi leikar og hæfni til samskipta

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélaga. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

 

Umsjón með störfunum hafa Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Silja Jóhannesdóttir (silja.johannesdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 22. október nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is.

Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.