Klárir í snjóinn á nýjum dráttarvélum

Sjö nýjar dráttarvélar með búnaði til snjóhreinsunar hafa verið teknar í gagnið hjá Reykjavíkurborg.  Vélarnar verða notaðar til snjóhreinsunar á stígum og gönguleiðum í borginni austan Elliðaáa og vestan Snorrabrautar, en verktakar sjá um vetrarþjónustu á svæðinu þar á milli.  

Snjóhreinsun í Reykjavík var mjög í sviðsljósinu á liðnum vetri sem var óvenju snjóþungur og eru kaupin á dráttarvélunum hluti af því að bæta vetrarþjónustu á stígum og gönguleiðum. Einnig hefur verið farið yfir viðbragðsáætlanir af starfshópi sem borgarstjóri skipaði. 

Í snjó og hálku er miðað við að fyrstu yfirferð í snjóhreinsun hjólastíga og gönguleiða að skólum og að biðstöðvum strætisvagna sé lokið fyrir klukkan 8 að morgni virka daga. Klukkan þrjú um nóttina er farin eftirlitsferð og starfsmenn ræstir út ef aðstæður gefa tilefni til. 

Starfsmenn dráttarvéladeildar eru ánægðir með nýju tækin og segja að allt annað og betra sé að vinna á þeim en eldri vélunum.  „Nú má snjórinn fara að vara sig“, sagði einn glaður í bragði.  Þeir hittu þjónustuaðila vélanna fyrir helgi til að deila reynslu sinni og leggja grunn að farsælum samskiptum. Meðfylgjandi myndir voru teknar við það tækifæri.    

Fjárfestingin í dráttarvélunum sjö ásamt fylgibúnaði nemur um 160 milljónum króna og voru kaupin boðin út eins og innkaupareglur borgarinnar segja til um. Vélfang ehf. varð hlutskarpast í útboðinu með Fendt 209, 95 ha. dráttarvélar. Tvær vélanna eru með ámoksturstækjum og af fylgibúnaði má nefna níu sanddreifara og jafn margar tennur, tvo snjóblásara og fimm sláttuvagna. Tveir sanddreifarar og tvær tennur voru hafðar breiðari til að geta farið skilvirkar í breiðari stígana og útskýrir það fjölda þeirra umfram traktorana.  Dráttarvélarnar koma í stað 6 eldri véla sem Reykjavíkurborg hafði haft í leigu í mörg ár. Yfir sumartímann verða nýju vélarnar notaðar í önnur verkefni svo sem við grasslátt.

Tengt efni: Upplýsingasíða um snjóhreinsun og hálkueyðingu

Tengd frétt:  Viljum góð ráð um betri vetrarþjónustu  

Myndir (stórar):

Nr. 1

Nr. 2 - Hópmyndin