Viljum góð ráð um betri vetrarþjónustu
Bæta á viðbúnað borgarinnar verulega til að geta brugðist við hratt og vel á snjóþungum dögum í vetur. Þessa dagana er verið að fara yfir allar viðbragðsáætlanir frá liðnum vetri til að laga það sem betur má fara og einnig verður tækjakostur bættur verulega fyrir veturinn. ,,Við viljum gjarnan fá ábendingar frá íbúum og fyrirtækjum um það sem betur má fara. Fólk þekkir vel sitt umhverfi og því er mikilvægt að við fáum þessi sjónarmið til að geta tekið tillit til þeirra í okkar skipulagningu,” segir Karl Sigurðsson, formaður starfshóps sem vinnur að endurskoðun vetrarþjónustu í Reykjavík.
Ábendingar frá íbúum um það sem betur má fara við snjóhreinsun verða að berast fyrir lok september svo taka megi tillit til þeirra í þessari vinnu. Best er að senda ábendingu í tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is en einnig er hægt að hringja í síma 4 11 11 11.
Starfshópur sem skipaður var af borgarstjóra á liðnum vetri þegar snjóruðningur og önnur vetrarþjónusta var í sviðsljósinu vegna óvenju mikils fannfergis mun fara yfir allar innsendar ábendingar. Í hópnum eru auk Karls Sigurðssonar, formanns, þau Hildur Sverrisdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Þorleifur Gunnlaugsson og Elsa Hrafnhildur Yeoman.
Starfshópurinn skilar endanlegum tillögum sínum fyrir lok október, en þó hafa nú þegar verið gerðar ráðstafanir til að bæta þjónustu við gangandi og hjólandi með kaupum á sjö nýjum traktorum með aukabúnaði til snjóhreinsunar. Vélarnar nýju verða afhentar innan tíðar. Fjárfestingin nemur um 160 milljónum króna og voru kaupin boðin út eins og innkaupareglur segja til um. Traktorarnir verða notaðar yfir sumartímann í önnur verkefni svo sem við grasslátt.