Jólahangs á Hlemmi

Hlemmur var í dag skreyttur í anda kvikmyndarinnar Christmas Vacation sem þýðir að  lögð er áhersla á magn jólaskrauts umfram gæði. Stemning níunda áratugarins svífur yfir vötnum og meðal annars hefur verið settur upp sýningargluggi inn í fortíðina þar sem fótanuddtæki og aðrar lífsnauðsynjar fyrri tíma fá að njóta sín. 

Alla laugardaga til jóla er svo boðið upp á tónleikaröðina ,,Hangið á Hlemmi“.  Þeir hefjast óstundvíslega kl. 15:00 og hanga eitthvað fram eftir.  Í anda ofgnóttar og fortíðarþráhyggju er frítt á tónleikana og aðeins vinsælar og skemmtilegar hljómsveitir sem spila.

Á morgun er það hljómsveitin Tilbury sem á sviðið en hún er búin að gera það gott undanfarið.  Nýverið kom út plata hennar Excorcise og ættu flestir ættu að kannast við lagið Tenderloin sem hefur náð miklum vinsældum á útvarpsstöðvum á Íslandi.

Hangið á Hlemmi alla laugardaga til jóla – Ókeypis tónleikar fyrir alla aldurshópa:

  1. desember kl 15:00 - Tilbury

  8. desember kl 15:00 - Agent Fresco

15. desember kl 15:00 - Retró Stefsson

22. desember kl 15:00 - Jónas Sig og Ómar Guðjóns

Jólahangsið er hluti af gleðiverkefninu Jólaborgin Reykjavík.