Jólahangs á Hlemmi
Hlemmur var í dag skreyttur í anda kvikmyndarinnar Christmas Vacation sem þýðir að lögð er áhersla á magn jólaskrauts umfram gæði. Stemning níunda áratugarins svífur yfir vötnum og meðal annars hefur verið settur upp sýningargluggi inn í fortíðina þar sem fótanuddtæki og aðrar lífsnauðsynjar fyrri tíma fá að njóta sín.
Alla laugardaga til jóla er svo boðið upp á tónleikaröðina ,,Hangið á Hlemmi“. Þeir hefjast óstundvíslega kl. 15:00 og hanga eitthvað fram eftir. Í anda ofgnóttar og fortíðarþráhyggju er frítt á tónleikana og aðeins vinsælar og skemmtilegar hljómsveitir sem spila.
Á morgun er það hljómsveitin Tilbury sem á sviðið en hún er búin að gera það gott undanfarið. Nýverið kom út plata hennar Excorcise og ættu flestir ættu að kannast við lagið Tenderloin sem hefur náð miklum vinsældum á útvarpsstöðvum á Íslandi.
Hangið á Hlemmi alla laugardaga til jóla – Ókeypis tónleikar fyrir alla aldurshópa:
1. desember kl 15:00 - Tilbury
8. desember kl 15:00 - Agent Fresco
15. desember kl 15:00 - Retró Stefsson
22. desember kl 15:00 - Jónas Sig og Ómar Guðjóns
Jólahangsið er hluti af gleðiverkefninu Jólaborgin Reykjavík.