Íbúafundur með lögreglunni um málefni Breiðholtsins
Fimmtudaginn 1. nóvember var hinn árlegi íbúafundur með lögreglunni um málefni Breiðholtsins. Fundurinn var haldinn í Breiðholtsskóla,
Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri Breiðholts ávarpaði gesti og lögreglan lagði fram tölulegar upplýsingar um stöðu mála í hverfinu.
Meðal annars mátti sjá að:
81% íbúa í Breiðholti eru ánægðir með störf lögreglu.
Umferðaslysum fækkar, skráðum umferðalagabrotum fækkar og ökuhraði virðist á niðurleið.
Ofbeldisbrotum hefur fækkað frá 2010.
Fjöldi tilkynntra þjófnaða í hverfinu frá janúar til október miðað við 1.000 íbúa hefur verið undir meðaltali höfuðborgarsvæðisins frá 2009.
Fjölda tilkynntra þjófnaða-innbrota á heimili frá janúar til október hefur fækkað gríðarlega frá 2009, miðað við 1.000 íbúa árið 2009 var hlutfallið 4,2 í að árið 2012 var hlutfallið komið niður í 1,6.
Einnig má finna umfjöllun um fundinn á tvittersíðu Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra, og á lögregluvefnum.
Til að fá aðstoð lögreglu - 112
Til að fá upplýsingar - 444 1000
Senda ábendingar - abending@lrh.is.
Vefur lögreglu - www.lrh.is.