Íbúafundur með lögreglunni um málefni Breiðholtsins

Fimmtudaginn 1. nóvember var hinn árlegi íbúafundur með lögreglunni um málefni Breiðholtsins. Fundurinn var haldinn í Breiðholtsskóla,

Óskar Dýrmundur Ólafsson hverfisstjóri Breiðholts ávarpaði gesti og lögreglan lagði fram tölulegar upplýsingar um stöðu mála í hverfinu.

Meðal annars mátti sjá að:

81% íbúa í Breiðholti eru ánægðir með störf lögreglu.

Umferðaslysum fækkar, skráðum umferðalagabrotum fækkar og ökuhraði virðist á niðurleið.

Ofbeldisbrotum hefur fækkað frá 2010.

Fjöldi tilkynntra þjófnaða í hverfinu frá janúar til október miðað við 1.000 íbúa hefur verið undir meðaltali höfuðborgarsvæðisins frá 2009.

Fjölda tilkynntra þjófnaða-innbrota á heimili frá janúar til október hefur fækkað gríðarlega frá 2009, miðað við 1.000 íbúa árið 2009 var hlutfallið 4,2 í að árið 2012 var hlutfallið komið niður í 1,6.

Einnig má finna umfjöllun um fundinn á tvittersíðu Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra, og á lögregluvefnum.

Til að fá aðstoð lögreglu - 112

Til að fá upplýsingar - 444 1000

Senda ábendingar - abending@lrh.is.

Vefur lögreglu - www.lrh.is.

www.facebook.com/logreglan.