Hverfastöðvar og símaver á snjóvaktinni
Hverfastöðvar og símaver Reykjavíkurborgar verða með vaktir yfir helgina milli kl. 10.30 - 15.00 bæði laugardag og sunnudag. Íbúar geta sótt sand og salt á hverfastöðvarnar og símaver veitir upplýsingar og tekur við ábendingum í síma 4 11 11 11. Í nótt klukkan 4.00 verða snjóruðningstækin ræst bæði fyrir umferðargötur og göngustíga.
Snjóruðningstæki hafa verið sleitulaust á ferðinni í dag og verða á götunum fram eftir kvöldi. Vélar hafa verið sendar í húsagötur eftir þörfum. Tækjaflotinn verður svo ræstur á ný klukkan fjögur í nótt, aðfararnótt laugardags.
Alla vikuna hafa íbúar sótt sér salt og sand á hverfastöðvarnar og til að mæta þörfinni verða hverfastöðvar við Njarðargötu, Flókagötu, Jafnasel og Stórhöfða opnar á laugardag og sunnudag kl. 10.30 - 15.00. Sjá staðsetningu hverfastöðvanna.
Símaverið kemur ábendingum um snjóhreinsun með skilvirkum hætti áfram til framkvæmda- og eignasviðs. Notuð er veflausn sem tengd er verkbeiðnakerfi sviðsins og tryggir það gott utanumhald og yfirsýn. Tekið er við ábendingum í síma 4 11 11 11 og einnig tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is en netfangið er stöðugt vaktað af símaverinu.