Hjólajól í Fossvogsskóla
Hugmyndaflugið í jólaskreytingum er engum takmörkunum háð í Fossvogsskóla en þar hafa hjólreiðar löngum verið í hávegum hafðar. Skólinn hefur nú verið skemmtilega skreyttur til að minna á gildi hjólreiða fyrir heilsu og umhverfi.
Hjól sem notuð hafa verið í skólanum til að kenna hjólafærni hafa á aðventunni fengið nýtt hlutverk. Búið er að hengja þau upp í gluggum, svo og hjólagjarðir, og skreyta með jólaljósum.
Óhætt er því að segja að hjólajólalegt sé orðið um að litast í skólanum og þykja gluggaskreytingarnar einstaklega frumlegar og skemmtilegar eins og myndirnar bera með sér.
Á aðventunni brjóta grunnskólarnir oft á tíðum upp hefðbundið skólastarf. Þá fá hefðir, gildi og menning meira hlutverk í skólastarfinu og sköpunarkraftur nemenda fær að njóta sín.