Hjólajól í Fossvogsskóla

Hugmyndaflugið í jólaskreytingum er engum takmörkunum háð í Fossvogsskóla en þar hafa hjólreiðar löngum verið í hávegum hafðar. Skólinn hefur nú verið skemmtilega skreyttur til að minna á gildi hjólreiða fyrir heilsu og umhverfi.

Hjól sem notuð hafa verið í skólanum til að kenna hjólafærni hafa á aðventunni fengið nýtt hlutverk. Búið er að hengja þau upp í gluggum, svo og hjólagjarðir, og skreyta með jólaljósum.

Óhætt er því að segja að hjólajólalegt sé orðið um að litast í skólanum og þykja gluggaskreytingarnar einstaklega frumlegar og skemmtilegar eins og myndirnar bera með sér. 

Á aðventunni brjóta grunnskólarnir oft á tíðum upp hefðbundið skólastarf. Þá fá hefðir, gildi og menning meira hlutverk í skólastarfinu og sköpunarkraftur nemenda fær að njóta sín.