Framkvæmdir hefjast brátt við nýja hjólaleið yfir Elliðaárósa

""

Ný hjóla- og gönguleið yfir Elliðaárósa verður opnuð 3. maí 2013. Borgarráð gaf á fundi sínum í dag heimild til að bjóða verkið út og er unnið að því hörðum höndum að svo megi verða um helgina. 

Byggðar verða tvær göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa, þær tengdar við stígakerfið og  lagður göngu- og hjólastígur milli þeirra yfir norðurenda Geirsnefs. Brýrnar verða um 36 metra langar og breidd brúargólfs um 4,5 metrar.   Yfir vesturkvíslina verður brúað með uppfyllingu en engar þrengingar verða  í austurkvísl. Stígarnir skiptast í 3ja metra breiðan göngustíg og 2,5 metra breiðan hjólastíg með graseyju á milli.

Hefðbundin götulýsing verður notuð á stígunum sem liggja að brúnum en á milli brúnna verður notaðir lágir pollar og lýsingu á brúnum verður komið fyrir í handlistum þeirra.  Hönnun brúa og stíga byggir á vinningstillögu í samkeppni sem Reykjavíkurborg og Vegagerðin efndu til í desember 2011 í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands.

Nýja hjóla- og gönguleiðin verður aðskilin frá hundasvæðinu með girðingu þvert yfir Geirsnefið og verða á henni tvö gönguhlið. Endanlegur áningastaður og útsýnispallur á nyrsta odda Geirsnefs verða ekki hluti af framkvæmdum í fyrsta áfanga.

Með tilkomu nýju leiðarinnar styttist vegalengd hjólandi og gangandi milli Grafarvogs og miðborgar um 0,7 km.  Þessa dagana er unnið af krafti við lagningu og endurgerð hjólaleiðar frá Hlemmi að Elliðaárósum.

Vegagerðin og Reykjavíkurborg standa sameignlega að þessari framkvæmd og skipta með sér kostnaði.  Heildarkostnaður vegna framkvæmda við brýrnar og stíga að þeim og milli þeirra er áætlaður um 230 milljónir króna.

ÍTAREFNI:

Ljósmynd af brúnni (vinningstillagan). - 2,42 Mb

Yfirlitsmynd af framkvæmdasvæði ásamt skýringum. - 0,09 Mb)               

Upplýsingasíða í Framkvæmdasjá.

Tengdar fréttir:

Tímamótasamningur um átak í gerð hjólreiða- og göngustíga. (31.07.2012)

Stórhugur í gerð göngu- og hjólastíga. (28.09.2012)