Dagur íslenskrar tungu í Borgarbókasafni

Að vanda er Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, fagnað í söfnum Borgarbókasafns. Söngur, dagbókarbrot, limrur og „opinn mike“ er meðal þess sem er á dagskrá.

Dagskrá í söfnum Borgarbókasafns

AÐALSAFN, TRYGGVAGÖTU 15, KL. 15.30

Börn af leikskólunum Drafnarborg og Dvergasteini syngja.

ÁRSAFN, HRAUNBÆ 119, KL. 11 - 16

Maraþonlestur frá 11-16 . Ruggustóllinn verður á sínum stað og opinn hljóðnemi. Boðið verður upp á ástarpunga með kaffinu í tilefni dagsins. Gestir eru hvattir til að láta ljós sitt skína.

FOLDASAFN, GRAFARVOGSKIRKJU V/FJÖRGYN, KL. 13 OG 15.30

Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi: limrur og dagbókarbrot. Sigurður Jón Ólafsson les kl. 13.

Börn af leikskólanum Sunnufold syngja valin lög í tilefni dagsins kl. 15.30.



GERÐUBERGSSAFN, GERÐUBERGI 3-5, KL. 11

Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi:limrur og dagbókarbrot.Sigurður Jón Ólafsson les.



KRINGLUSAFN, KRINGLUNNI, KL. 13 OG 14

Börn af leikskólanum Álftaborg syngja valin lög í tilefni dagsins kl. 13.

Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi: limrur og dagbókarbrot. Sigurður Jón Ólafsson les kl. 14.

SÓLHEIMASAFN, SÓLHEIMUM 27, KL. 15

Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi: limrur og dagbókarbrot. Sigurður Jón Ólafsson les.