Dagur íslenskrar tungu í Borgarbókasafni
Að vanda er Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, fagnað í söfnum Borgarbókasafns. Söngur, dagbókarbrot, limrur og „opinn mike“ er meðal þess sem er á dagskrá.
Dagskrá í söfnum Borgarbókasafns
AÐALSAFN, TRYGGVAGÖTU 15, KL. 15.30
Börn af leikskólunum Drafnarborg og Dvergasteini syngja.
ÁRSAFN, HRAUNBÆ 119, KL. 11 - 16
Maraþonlestur frá 11-16 . Ruggustóllinn verður á sínum stað og opinn hljóðnemi. Boðið verður upp á ástarpunga með kaffinu í tilefni dagsins. Gestir eru hvattir til að láta ljós sitt skína.
FOLDASAFN, GRAFARVOGSKIRKJU V/FJÖRGYN, KL. 13 OG 15.30
Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi: limrur og dagbókarbrot. Sigurður Jón Ólafsson les kl. 13.
Börn af leikskólanum Sunnufold syngja valin lög í tilefni dagsins kl. 15.30.
GERÐUBERGSSAFN, GERÐUBERGI 3-5, KL. 11
Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi:limrur og dagbókarbrot.Sigurður Jón Ólafsson les.
KRINGLUSAFN, KRINGLUNNI, KL. 13 OG 14
Börn af leikskólanum Álftaborg syngja valin lög í tilefni dagsins kl. 13.
Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi: limrur og dagbókarbrot. Sigurður Jón Ólafsson les kl. 14.
SÓLHEIMASAFN, SÓLHEIMUM 27, KL. 15
Hálfgerðir englar og tvöfaldur regnbogi: limrur og dagbókarbrot. Sigurður Jón Ólafsson les.