Áramótabrennur með hefðbundnu sniði
Áramótabrennur í Reykjavík í ár eru tíu talsins og verður eldur borinn að köstunum kl. 20:30 að kvöldi gamlársdags. Eina undantekningin er kösturinn við Úlfarsfell sem kveikt verður í kl. 14:30.
Brennurnar verða á sömu slóðum og undanfarin ár, en í Laugardal verður brennustæðið fært vegna byggingar þjónustuhúss í nágrenninu og er það gert í samráði við Eldvarnaeftirlitið. Borgarbúar eru hvattir til að fjölmenna á brennur með góða skapið og hafa gjarnan með sér stjörnuljós en skilja skotelda eftir heima.
Byrjað verður að safna í borgarbrennurnar fimmtudaginn 27. desember og hætt að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar samkvæmt viðmiðunum Eldvarnareftirlitsins, þó í síðasta lagi kl. 12:00 á gamlársdag.
„Best er að fá hreint timbur á brennurnar“ segir Þorgrímur Hallgrímsson brennukóngur og rekstrarstjóri hjá Reykjavíkurborg. Meginuppistaðan í brennunum eru vörubretti en einnig berst afgangur frá jólatréssölum. Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi á köstinn. „Það er liðin tíð að fólk komi með drasl úr geymslum enda er þar margt sem ekki má fara á brennurnar“, segir hann. Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar standa brennuvaktina. Þeir taka á móti efni í brennurnar og verða svo á vakt við brennurnar fram eftir á nýársnótt þar til slökkt hefur verið í glæðunum. Endanleg hreinsun brennustæða fer svo fram miðvikudaginn 2. janúar.
Brennurnar verða eins og áður segir á 10 stöðum, þar ef eru sex í umsjá Reykjavíkurborgar en fjórar þær síðastnefndu á listanum hér fyrir neðan eru á vegum félagasamtaka og áhugahópa. Númerin vísa til meðfylgjandi korts frá Umhverfis- og skipulagssviði.
- Við Ægisíðu, stór brenna.
- Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.
- Gufunes, stór brenna.
- Geirsnef, stór brenna.
- Við Suðurfell, lítil brenna.
- Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna
- Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48 – 52, lítil brenna.
- Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnarvöll, lítil brenna.
- Fylkisbrennan, við Rauðavatn, stór brenna.
- Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna, kl. 14:30
Skoða kort: Áramótabrennur í Reykjavík 2012 - 2013.