Áramótabrennur með hefðbundnu sniði

Áramótabrennur í Reykjavík í ár eru tíu talsins og verður eldur borinn að köstunum kl. 20:30 að kvöldi gamlársdags.  Eina undantekningin er kösturinn við Úlfarsfell sem kveikt verður í kl. 14:30.

Brennurnar verða á sömu slóðum og undanfarin ár, en í Laugardal verður brennustæðið fært vegna byggingar þjónustuhúss í nágrenninu og er það gert í samráði við Eldvarnaeftirlitið. Borgarbúar eru hvattir til að fjölmenna á brennur með góða skapið og hafa gjarnan með sér stjörnuljós en skilja skotelda eftir heima.

Byrjað verður að safna í borgarbrennurnar fimmtudaginn 27. desember og hætt að taka á móti efni þegar þær eru orðnar hæfilega stórar samkvæmt viðmiðunum Eldvarnareftirlitsins, þó í síðasta lagi kl. 12:00 á gamlársdag.

„Best er að fá hreint timbur á brennurnar“ segir Þorgrímur Hallgrímsson brennukóngur og rekstrarstjóri hjá Reykjavíkurborg. Meginuppistaðan í brennunum eru vörubretti en einnig berst afgangur frá jólatréssölum.  Plast, gúmmí og unnið timbur á ekki erindi á köstinn. „Það er liðin tíð að fólk komi með drasl úr geymslum enda er þar margt sem ekki má fara á brennurnar“, segir hann.  Starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar standa brennuvaktina. Þeir taka á móti efni í brennurnar og verða svo á vakt við brennurnar fram eftir á nýársnótt þar til slökkt hefur verið í glæðunum. Endanleg hreinsun  brennustæða fer svo fram miðvikudaginn 2. janúar.

Brennurnar verða eins og áður segir á 10 stöðum, þar ef eru sex í umsjá Reykjavíkurborgar en fjórar þær síðastnefndu á listanum hér fyrir neðan eru á vegum félagasamtaka og áhugahópa. Númerin vísa til meðfylgjandi korts frá Umhverfis- og skipulagssviði.

  1. Við Ægisíðu, stór brenna.
  2. Við Suðurhlíðar, neðan við Fossvogskirkjugarð, lítil brenna.
  3. Gufunes, stór brenna.
  4. Geirsnef, stór brenna.
  5. Við Suðurfell, lítil brenna.
  6. Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna
  7. Skerjafjörður gegnt Skildinganesi 48 – 52,  lítil brenna.
  8. Vestan Laugarásvegar móts við Valbjarnarvöll,  lítil brenna.
  9. Fylkisbrennan, við Rauðavatn, stór brenna.
  10. Úlfarsfell á athafnasvæði Fisfélagsins ofan við Lambhagaveg, lítil brenna, kl. 14:30

Skoða kort: Áramótabrennur í Reykjavík 2012 - 2013.