Vörðuskóli - endurnýjun glugga og þaks

Þak á aðalbyggingu Vörðuskóla verður endurnýjað samhliða endurnýjun á öllum gluggum. Gert verður við önnur þök og unnið samkvæmt upprunalegum teikningum Guðjóns Samúelssonar.
2022-2024
Í undirbúningi
Í framkvæmd
Lokið

Hvað verður gert?

Gluggar og útidyrahurðar verða endurnýjaðar.

Aðalhurðhússins verður þó gerð upp og látin halda sér.

Þakvirki á aðalbyggingu er endurgert.

Þök á íþróttahúsum verða betrumbætt.

Asbest og annað óæskilegt og rakaskemmt byggingarefni fjarlægt.

Í hönnun er múrkerfi til að verja útvegginn og koma í veg fyrir leka sem mun jafnframt endurspegla sögulegt útlit hússins. 

Hvernig gengur?

Maí 2024

Endurnýjun glugga er langt komin.

Lokið er endurgerð á þaki aðalhúss.

Hönnunar-og útboðsgögn vegna múrkerfis á útvegg í þróun. 

Síðast uppfært 11.06.2024