Vetrargarður í Breiðholti

Framkvæmdir vegna Vetrargarðs í Breiðholti eru hafnar. Skíðalyftan sem er til staðar, hefur verið tekin niður tímabundið á meðan á framkvæmdum stendur. Svæðið verður mótað upp á nýtt. Búist er við að hægt verði að setja aftur upp skíðalyftu sumarið 2025 samhliða annarri uppbyggingu á svæðinu tengt garðinum.
Árið 2025.
Undirbúningur
Hafið
Lokið

Myndasafn

Hvað verður gert?

Vetrargarðurinn er hluti af hverfisskipulagi fyrir Neðra-Breiðholt, Seljahverfi og Efra-Breiðholt, ásamt leiðbeiningum og tók það formlega gildi vorið 2022. 

Vetrargarðurinn verður framtíðar fjölskyldugarður fyrir vetraríþróttir í Reykjavík auk hjólagarðs á sumrin. Áhersla er áfram á að þjónusta börn og fjölskyldur og að miða starfsemina við byrjendur. Stefnt væri að tryggja samfellda þjónustu og rekstur allan ársins hring en megináhersla garðsins er að stuðla að aukinni hreyfingu og útiveru meðal borgarbúa. 

Auk aðgengis fyrir almenning er ætlunin að bjóða leik- og grunnskólabörnum á skíði á skólatíma. Skíðafélögin hér á höfuðborgarsvæðinu nýta sér garðinn til æfinga fyrir yngstu kynslóðina. 

Svæðið afmarkast af fyrirhuguðum Arnarnesvegi í austri, íbúðarhverfi við Jakasel í suðri, Breiðholtsbraut í norðri og á athafnasvæði við Jafnasel í vestri. Svæðið liggur í um 99 m hæð yfir sjávarmáli þar sem það er lægst en fer hæst í um 130 m hæð. 

Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa í sumar var samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir Vetrargarðinn í Breiðholti, nánar tiltekið fyrir móttöku á jarðvegi og mótun skíðabrekkna og lands innan svæðisins. Gildistími framkvæmdaleyfisins er til 31. janúar 2025.

Hvernig gengur?

Október 2023

Byrjað er að flytja jarðveg vegna framkvæmda við Arnarnesveg á svæðið.

Hver koma að verkinu?

Verkefnastjóri

Einar Kristján Stefánsson
Síðast uppfært 12.03.2024