Vetrargarður í Breiðholti

Upplýsingasíða fyrir framkvæmdir við Vetrargarð í Breiðholti
Verkið hófst 2025
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndasafn

Hvað verður gert?

Vetrargarðurinn er hluti af hverfisskipulagi fyrir Neðra-Breiðholt, Seljahverfi og Efra-Breiðholt, ásamt leiðbeiningum og tók það formlega gildi vorið 2022. 

Vetrargarðurinn verður framtíðar fjölskyldugarður fyrir vetraríþróttir í Reykjavík auk hjólagarðs á sumrin. Áhersla er áfram á að þjónusta börn og fjölskyldur og að miða starfsemina við byrjendur. Stefnt væri að tryggja samfellda þjónustu og rekstur allan ársins hring en megináhersla garðsins er að stuðla að aukinni hreyfingu og útiveru meðal borgarbúa. 

Auk aðgengis fyrir almenning er ætlunin að bjóða leik- og grunnskólabörnum á skíði á skólatíma. Skíðafélögin hér á höfuðborgarsvæðinu nýta sér garðinn til æfinga fyrir yngstu kynslóðina. 

Svæðið afmarkast af fyrirhuguðum Arnarnesvegi í austri, íbúðarhverfi við Jakasel í suðri, Breiðholtsbraut í norðri og á athafnasvæði við Jafnasel í vestri. Svæðið liggur í um 99 m hæð yfir sjávarmáli þar sem það er lægst en fer hæst í um 130 m hæð. 

 

Hvernig gengur?

Mars 2026

  • Landmótun, jöfnun og grassáningu Vetrargarðsins er að mestu lokið
  • Sumarið 2025 hófst vinna við gróðursetningu og umhverfisfrágang
  • Haust 2025 var lokið við jarðvegsskipti á 1. Áfanga bílastæða

Áformað á þessu ári:

  • Áframhaldandi vinna við gróðursetningu skjólabelta
  • Uppsetning snjógirðinga og öryggisgirðinga við grjóthleðslur meðfram Arnarnesvegi og aðra bratta bakka
  • Uppsetning lýsingar á skíðabrekkum og sleðabrekkum
  • Undirbúningur og útboðsgögn fyrir fyrstu skíðalyftu

2024-2025

  • Jöfnun og grassáningu neðri hluta Vetrargarðsins verður lokið sumarið 2024 og hefur verið unnið að uppfyllingu á efri hlutanum s.l. vetur.
  • Landmótun og sáningu þess hluta sem ólokið er verður lokið á komandi sumri og verða brekkur Vetrargarðsins þá fullmótaðar og frágengnar með grasi.
  • Áformað er að hefja vinnu við jarðvegsskipti og aðrar undirbúningsframkvæmdir við bílastæði neðst á svæðinu haustið 2025.
  • Stefnt er að gróðursetningu fyrsta áfanga trjáa fyrir skjólbelti haustið 2025.
  • Unnið að hönnun og útboðsgögnum fyrir lyftu og lýsingu.

Hverjir koma að verkinu?

Verkefnastjóri

Einar Kristján Stefánsson

Samstarfsverkefni MIR og USK

Verkið er unnið af Suðurlofti ehf í samstarfi við Vegagerðina.
Last updated 27.03.2026