Vatnsstígur - Endurnýjun frá Laugavegi að Hverfisgötu

Verkið felst í endurgerð götu og uppfærslu veitna í Vatnsstíg milli Laugavegar og Hverfisgötu. Gatan verður göngugata.
Verkkaupar eru Reykjavíkurborg og Veitur.
Framkvæmdatími: Mars 2025 - Ágúst 2025
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Myndir

Hvað verður gert?

Jarðvinna:
Jarðvegsskipta á í götunni og því töluverður uppgröftur sem leiðir til þess að lokað verður á umferð bíla um götuna á framkvæmdatíma. Líklegt er að fleyga þurfi töluvert af klöpp. Aðgengi gangandi að lóðum og inngöngum verður tryggt.

Veitur:
Gatan verður upphituð og snjóbræðsla lögð í allt göturýmið. Borgarlýsing verður uppfærð; nýir götuljósastrengir, stólpar og lampar. Lögð verður tvöföld fráveita sem tengd verður núverandi fráveitukerfi í Laugavegi og Hverfisgötu. Lagðar verða nýjar kaldavatnslagnir og hitaveitulagnir. Rafveita verður uppfærð að einhverju leiti.

Yfirborðsfrágangur:
Nýtt yfirborð götu verður hellulagt ásamt gróðurbeðum og blágrænum ofanvatnslausnum. Gatan verður göngugata en aðgengi bíla að lóðum verður tryggt.

 

Hvernig gengur?

Nóvember 2025

Nokkrar tafir hafa orðið á verkframkvæmd af ýmsum ástæðum og því hefur orðið töluverð seinkun á skiladagsetningu verksins.  Verktaki gerir ráð fyrir að ná að klára verkið fyrir lok ársins en þar sem verk hefur dregist inn í vetur sem ekki var gert ráð fyrir í upphafi þá getur veður haft töluverð áhrif á framgang verksins.

Mars 2025

Búið er að halda upphafsfund í verkinu og hefur verktaki skilað inn verkáætlun. Verktaki hyggst byrja á undirbúningi og upprifi á malbiki 17. mars. Því næst er áætlað að vinna við gröft og fleygun fyrir fráveitu og kaldavatni hefjist 10 dögum síðar.

Febrúar 2025

Samið hefur verið við verktaka til að vinna verkið í sumar og búist er við að framkvæmdir hefjist um miðjan mars. 

Hver koma að verkinu?

Verkefnisstjóri Reykjavíkurborgar

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds

Verkefnisstjóri Veitna

Auður Guðríður Hafliðadóttir

Verktaki

Stjörnugarðar

Eftirlit framkvæmda

Verkfræðistofa Reykjavíkur

Eftirlit fornminja

Fornleifastofnun Íslands

Verkhönnun

Hnit verkfræðistofa hf.

Landslagsarkitekt

Landslag ehf.
Síðast uppfært 26.11.2025