Leikskólinn Seljaborg - kennslustofur, hönnun, smíði og lóðarfrágangur

Uppsetning tveggja færanlegra kennslustofa við leikskólann Seljaborg.
2024 - 2026
Undirbúningur
Undirbúningur
Í framkvæmd
Í framkvæmd
Lokið
Lokið

Teikningar

Hvað verður gert?

Innanhús og utanhússfrágangi á nýjum stofum við Seljaborg er að mestu lokið. Verið er að vinna að lóðarfrágangi sem og frágangi meðfram Ölduseli.

 

Framkvæmd felur í sér hönnun, smíði, flutning og uppsetningu tveggja kennslustofa ásamt tengibyggingu við leiksólann Seljaborg. Verkefnið nær einnig til hönnunar og framkvæmdar jarðvinnu, gerðar undirstaða og lagningar allra lagna í grunni. Að auki felur verkið í sér lóðarvinnu, lagningu og tengingu stofnlagna við viðeigandi kerfi samkvæmt fyrirliggjandi hönnun. 

 

Stofurnar verða byggðar utan lóðar. Á meðan á byggingu þeirra stendur á  að grafa lagnaskurð frá núverandi byggingu og að nýjum húsum. Stefnt er að því að ljúka þeim hluta framkvæmdarinnar áður en komið verður með húsin. Frágangur lóðar er einnig hluti af verkinu. Endurnýja þarf þann hluta lóðarinnar þar sem nýjar stofur koma og ganga frá yfirborði.

 

Í öðru húsinu er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir nemendur, fatahólfum, snyrtingu, leikrýmum og listasmiðju. Í tengibyggingu verður matstofa sem einnig má nýta sem fjölnota rými. Í hinu húsinu er gert ráð fyrir starfsmannaaðstöðu fyrir starfsfólk leikskólans með kaffistofu, undirbúningsrými og fundaaðstöðu.

 

Á meðan á byggingu þeirra stendur á að grafa lagnaskurð frá núverandi byggingu og að nýjum húsum. Stefnt er að því að ljúka þeim hluta framkvæmdarinnar áður en komið verður með húsin. Frágangur lóðar er einnig hluti af verkinu. Endurnýja þarf þann hluta lóðarinnar þar sem nýjar stofur koma og ganga frá yfirborði.

Hvernig gengur?

3. júlí 2026

Innanhúss og utanhúss frágangur á húsum er lokið. 

Verið er að ljúka lóðarfrágangi sem og frágangi á lóð við Tungusel. Uppsetningu á nýjum grindverkum, frágangi á hellum á lóð, aðlögun að nýrri gangstétt við Tungusel ofl. 

 

20. júni 2026

Innanhúss og utanhúss frágangur á húsum er lokið. 

Verið er að ljúka lóðarfrágangi sem og frágangi á lóð við Tungusel. Lögð hefur verið ný gangstétt við Tungusel sem og staðsetning á nýjum sorpskýlum, einnig hefur aðgengi að eldri byggingu verið bætt. 

7. Apríl 2026

Flutningur á stofum gekk vel. 

Voru þær hífðar á lóðina 1. apríl. 

Gekk það samkvæmt áætlun. 

 Verið er að vinna að innanhúsfrágangi á stofunum. Ásamt frágangi á lóð og meðfram Ölduseli. 

Hver koma að verkinu?

Umhverfis- og skipulagssvið

Skrifstofa framkvæmda - og viðhalds

Eftirlit/umsjón

Burðarþol

Landslaghönnun

Verktaki

SG hús / Eðalbyggingar

Raflagnir/lýsing

Síðast uppfært 06.07.2026